Átján handteknir eftir átök í Barselóna
Til átaka kom milli lögreglu og mótmælenda í Barselóna á miðvikudag eftir fjölmenn mótmæli vegna hækkandi húsnæðiskostnaðar og verri kaupmáttar. Átján voru handteknir í borginni. Hundruð þúsunda tóku þátt í mótmælum víðs vegar um Spán samhliða fyrsta sólarhringsallsherjarverkfalli landsins frá árinu 2012.
Hópar hettuklæddra og grímuklæddra mótmælenda köstuðu hlutum að lögreglu og kveiktu í ruslatunnum eftir mótmælafundi í Barselóna og Madríd. Lögregla beitti gúmmíkúlum og táragasi til að dreifa hópunum.
Að mati yfirvalda gengu um 55 þúsund manns eftir verslunargötunni Passeig de Gràcia í Barselóna. Í Madríd létu um 120 þúsund manns úrhellisrigningu ekki aftra sér frá því að krefjast aðgerða til að gera húsnæði viðráðanlegra. Tugir þúsunda til viðbótar mótmæltu í öðrum borgum.
Mótmælin fara fram fáeinum vikum fyrir þingkosningar 29. nóvember og er umfang þeirra talið til marks um óánægju meðal almennings.
Lögreglan áætlar að um 55 þúsund manns hafi komið saman og mótmælt í tengslum við allsherjarverkfallið í Barselóna. Mótmælin fóru að stóru leyti friðsamlega fram, en um kvöldið kom til átaka milli lögreglu og mótmælenda og voru 18 handteknir. AFP/Manaure Quintero
Ólíkt mat á þátttöku
Verkalýðssamtökin UGT og CCOO boðuðu til verkfallsins í kjölfar mótmælaöldu vegna húsnæðismála. Hún hófst eftir að 87 ára lífeyrisþega í Madríd var borinn út af heimili sínu í september.
Truflanir urðu á almenningssamgöngum, einkum í Barselóna og nágrenni. Verkalýðssamtökin sögðu þátttöku mikla, meðal annars hjá starfsfólki í bílaframleiðslu, jarðolíuiðnaði og kjötiðnaði, þótt hún hefði verið misjöfn eftir svæðum og atvinnugreinum.
Samtök atvinnurekenda, CEOE, sögðu verkfallið hins vegar hafa mistekist og starfsemi að mestu gengið eðlilega. Raforkueftirspurn hefði dregist saman um fimm prósent, mun minna en í fyrri verkföllum.
Frá átökum lögreglu og mótmælenda í höfuðborginni Madríd. Þar er áætlað að um 100 þúsund manns hafi safnast saman. AFP/thomas Coex
Húsnæðismál í forgrunni kosninga
Pedro Sánchez forsætisráðherra boðaði til kosninganna eftir að minnihlutastjórn hans tókst ekki að fá þingið til að samþykkja húsnæðisaðgerðir sem lagðar voru fram vegna mótmælanna. Kosningar áttu upphaflega að fara fram árið 2027. Hægri stjórnarandstöðunni er spáð sigri.
Atvinnurekendur og hægriflokkar hafa gagnrýnt verkfallið og tengt það kosningabaráttunni. Verkalýðssamtökin segja kröfunni um aðgerðir gegn hækkandi húsnæðiskostnaði hins vegar beint að öllum stjórnsýslustigum, óháð því hvaða flokkar fari þar með völd.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗



