GTA VI sló umferðarmetið hjá Nova
Mikil eftirvænting er nú meðal tölvuleikjaspilara fyrir tölvuleiknum Grand Theft Auto VI, (GTA VI) en hann á að koma út 19. nóvember næstkomandi.
Fyrirrennarar leiksins í GTA-seríunni hafa verið á meðal vinsælustu tölvuleikja síðustu árin, en þrettán ár eru liðin frá því að GTA 5 kom út, en hann er jafnframt í öðru sæti yfir mest seldu leiki allra tíma.
Áhrifin sáust um leið
Þeir sem hafa keypt GTA6 í forsölu rafrænt geta nú sótt leikinn á tölvur sínar, en opnað var fyrir forniðurhal (e. pre-download) á leiknum á miðnætti 10. nóvember sl.
Var ekki að sökum að spyrja að nánast um leið og opnað var fyrir forniðurhalið fór umferð um útlandagátt netfyrirtækisins Nova í sögulegt hámark.
„Það er ekki á hverjum degi sem einn tölvuleikur sést svona skýrt í umferðartölum heillar þjóðar,“ segir Ólafur Magnússon, tæknistjóri Nova í tilkynningu frá fyrirtækinu.
Leikurinn er um 212 GB að stærð, sem er margfalt stærra en flestir aðrir tölvuleikir og sést það gjört á netumferðinni, en í tölum frá Nova sjást þrír toppar í netumferðinni 10. nóvember.
Á miðnætti jókst niðurhal um helming miðað við venjulega nótt, þegar þeir spilarar sem eru áhugasamastir byrjuðu að hala leiknum niður við fyrsta mögulega tækifæri.
Um morguninn var netumferðin tvöföld miðað við venjulegan morgun, þegar þeir sem ekki voru vakandi á miðnætti settu niðurhalið í gang.
Um kvöldið fór umferðin um 20% yfir hefðbundinn kvöldtopp, sem er mesta umferð sem nokkru sinni hefur mælst í útlandagátt Nova.
„Kerfið réð vel við álagið, og við eigum von á öðrum toppi í kringum útgáfudaginn 19. nóvember þegar uppfærslur fara að streyma inn,“ segir Ólafur jafnframt í tilkynningunni.
内容来自 mbl.is - Tækni og Vísindi,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

