Ótrúlega stoltur af stóra bróður

Daníel Tristan Guðjohnsen er stoltur af stóra bróður.

Andri Lucas Guðjohnsen er einn heitasti framherji Evrópu um þessar mundir en hann hefur raðað inn mörkum með Blackburn í B-deild Englands undanfarnar vikur.

„Það er bara geggjað að fylgjast með honum,“ sagði Daníel Tristan Guðjohnsen, yngri bróðir Andra, í samtali við mbl.is.

„Við vorum einmitt að tala um þetta, ég og Svenni (Sveinn Aron Guðjohnsen, eldri bróðir þeirra), hvað það er gjörsamlega galið hvað hann er búinn að skora mikið og hvað honum er búið að ganga vel.

Við erum báðir ótrúlega stoltir af honum. Það er bara það besta í heimi að sjá bróður sinn gera svona góða hluti,“ sagði Daníel og hélt áfram:

„Hann er brjálæðislega góður í að skora úr færunum sínum. Það er bara geggjað og ógeðslega gaman að sjá,“ sagði hann.

Gott gengi stóra bróður kemur Daníel ekki á óvart.

„Nei, ég hef alltaf einhvern veginn séð þetta fyrir mér. Hann hefur alltaf verið ógeðslega góður í að klára færin sín, þannig að þetta kemur ekkert á óvart, þannig séð. Maður er einhvern veginn í smá sjokki, en samt ekki,“ sagði framherjinn ungi.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅