Tvöfalt hlutverk verjandans

Þétt var setið í sal 101 í morgun.

Þétt var setið í sal 101 í morgun. mbl.is/Þorsteinn

Það er í mörg horn að líta þegar kemur að skipulagi og umgjörð fyrir Landsbankamálið svokallaða, en í því er 71 ákærður fyrir fjársvik og peningaþvætti í tengslum við kerfisvillu hjá Reiknistofu bankanna sem misnotuð var til að svíkja tugi milljóna sem ekki var innistæða fyrir af reikningum í Landsbankanum og reynt að taka út sem reiðufé.

Ljóst er að aðalmeðferð málsins mun fara fram utan dómstóla, líkt og gert var í Bankastræti club-málinu. Þar fór aðalmeðferðin fram í Gullhömrum, en útlit er fyrir að enn fleiri sakborningar verði við aðalmeðferð þessa máls, eða allt að 38.

Túlkaþjónusta er annað sem huga þarf að, en stór hluti sakborninga í málinu er ekki með íslensku sem móðurmál. Í fyrirtöku í dag var meðal annars túlkað á ensku, rúmensku og rússnesku.

Úr túlkahlutverki í skikkjuna

Ein þeirra sem hefur sinnt þessu hlutverki er Felicia Mariana Pralea hjá Opus lögmönnum sem kemur sjálf frá Rúmeníu en útskrifaðist með meistaragráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2022 og hlaut málflutningsréttindi árið 2024.

Það vakti athygli í fyrirtökunni að Felicia túlkaði fyrst fyrir einn sakborning í málinu, skellti svo á sig lögmannsskikkjunni og tók við sem verjandi annars sakbornings. Ekki er víst að slíkt sé algeng sjón í dómsölum, hvorki hér á landi né erlendis.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅