Kristrún boðar mat en setur enga tímaáætlun
Forsætisráðuneytið hyggst meta framkvæmd laga um varnir gegn hagsmunaárekstrum í Stjórnarráði Íslands. Sérstakt mat á framkvæmd ákvæða um skráningu hagsmunavarða, samskipti þeirra við stjórnvöld og birtingu upplýsinga hefur ekki farið fram.
Hraði fyrirhugaðrar vinnu mun ráðast af forgangsröðun verkefna í ráðuneytinu.
Þetta kemur fram í skriflegu svari Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra við fyrirspurn Dags B. Eggertssonar, þingmanns Samfylkingarinnar, um gagnsæi hagsmunagæslu og mat Efnahags- og framfarastofnunarinnar, OECD.
Að loknu matinu verði tekin afstaða til þess hvort tilefni sé til að endurskoða lögin, meðal annars hvort víkka eigi gildissvið þeirra. Ekki hefur verið ákveðið hvenær frumvarp verði lagt fram, komi til slíkrar endurskoðunar.
Uppfyllir fimmtung viðmiða um regluverkið
Dagur spurði hvort ráðuneytið hefði skoðað mat OECD á íslensku regluverki um hagsmunagæslu gagnvart stjórnvöldum og hvaða umbóta ráðherra teldi þörf.
Í svarinu er vísað til skýrslunnar Anti-Corruption and Integrity Outlook 2026, sem birt var 24. mars síðastliðnum. Samkvæmt henni uppfyllir íslenskt regluverk um hagsmunagæslu 20% matsviðmiða OECD, samanborið við 43% að meðaltali meðal aðildarríkjanna.
Hlutfallið er hið sama í Noregi og Svíþjóð. Finnland uppfyllir 40% viðmiðanna en Danmörk ekkert þeirra.
Þegar kemur að framkvæmdinni er staða Íslands hins vegar yfir meðaltali OECD-ríkja. Ísland uppfyllir þar 44% matsviðmiðanna en meðaltalið er 38%. Til samanburðar uppfyllir Finnland tæplega 90% viðmiðanna og Noregur 11%, en Danmörk og Svíþjóð ekkert þeirra.
Í svarinu segir að ekki hafi verið metið hvort tilefni sé til að setja frekari reglur um hagsmunagæslu gagnvart stjórnvöldum eða breyta framkvæmdinni.
Ekki kynntar tilteknar umbætur
Dagur spurði einnig hvort framkvæmd ákvæða laga um varnir gegn hagsmunaárekstrum frá árinu 2020 hefði verið metin. Þá óskaði hann upplýsinga um hvort frumvörp eða aðgerðir væru í undirbúningi til að auka gagnsæi, meðal annars varðandi skráningarskyldu, opinbera birtingu upplýsinga, eftirlit og viðurlög.
Þessum spurningum er svarað saman. Fram kemur að sérstakt mat á framkvæmd ákvæða um skráningu hagsmunavarða, skráningu samskipta við stjórnvöld og birtingu upplýsinga hafi ekki farið fram. Ráðuneytið hafi hins vegar í hyggju að meta framkvæmd laganna.
„Í framhaldinu verður metið hvort tilefni sé til endurskoðunar þeirra, þar á meðal hvort útvíkka eigi gildissvið laganna,“ segir í svarinu.
Ekki eru kynntar tilteknar lagabreytingar eða aðgerðir, né sett fram tímaáætlun. Um framvinduna segir: „Hraði þeirrar vinnu mun ráðast af forgangsröðun verkefna í ráðuneytinu.“
Ekki tekin sérstök afstaða til sameiginlegrar skrár
Loks spurði Dagur hvort ráðherra hygðist leggja fram frumvarp um sameiginlega, opinbera og leitarbæra skrá um hagsmunagæslu. Hún næði til Stjórnarráðsins, Alþingis og sveitarfélaga og tengdist einstökum þingmálum og öðrum opinberum ákvörðunum.
Í svarinu er ekki tekin sérstök afstaða til slíkrar skrár. Þar segir einungis að ekki hafi verið ákveðið hvenær frumvarp verði lagt fram, komi til fyrrnefndrar endurskoðunar laganna.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
