Eru að spila fyrir lífsviðurværi sínu
Lúkas Petersson, markvörður U21 árs landsliðs Íslands, er þriðji markvörður hjá Hoffenheim í Þýskalandi og spilar með varaliði þess í þriðju efstu deild.
„Markmiðið núna er að eiga gott tímabil í þriðju deild og sjá svo hvaða möguleikar opnast á næsta ári,“ sagði Lúkas við mbl.is og hélt áfram:
„Kannski get ég farið í næstefstu deild eða á lán á svipuðu getustigi. Það gæti líka verið möguleiki á að verða annar markvörður í A-liðinu, en mig langar að spila. Þannig er staðan núna,“ sagði hann.
Þriðja efsta deild í Þýskalandi er mjög sterk og mikið undir hjá leikmönnum.
„Deildin er mjög sterk. Þetta er alvöru fullorðinsfótbolti. Þetta eru menn með fjölskyldur sem eru að spila fyrir lífsviðurværi sínu. Ef liðin falla hefur það gríðarleg fjárhagsleg áhrif og breytir miklu fyrir þá.
Getustigið er mjög gott og það er líka mjög gaman að spila fyrir framan til dæmis 20 þúsund manns,“ sagði Lúkas.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗