Fordæma rasísk skilaboð

Jayden Bogle.

Jayden Bogle. AFP/Paul Ellis

Leeds United hefur fordæmt harðlega rasísk skilaboð sem Jayden Bogle, varnarmaður liðsins, hefur fengið á samfélagsmiðlum eftir 1:0-sigur á Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á laugardag.

Bogle, sem er 26 ára, varð fyrir aðkasti eftir að hann slapp við brottrekstur fyrir tæklingu á Mathys Tel í fyrri hálfleik. Tel þurfti að yfirgefa völlinn eftir atvikið en dómari leiksins ákvað að sýna Bogle ekki rautt spjald eftir skoðun myndbandsdómara.

Tottenham hyggst leggja fram formlega kvörtun vegna dómsins og óska eftir skýringum frá dómarayfirvöldum í ensku úrvalsdeildinni.

Leeds hefur heitið því að vinna með deildinni og yfirvöldum að því að bera kennsl á þá sem stóðu að skilaboðunum og tryggja að þeir sæti ábyrgð.

Félagið segir Bogle hafa fullan stuðning sinn og liðsfélaga sinna. Tottenham hefur einnig fordæmt framkomuna og boðist til að aðstoða við að finna þá sem bera ábyrgð.

Bogle er einn fjölmargra leikmanna í ensku úrvalsdeildinni sem hafa orðið fyrir kynþáttaníði á netinu á þessu ári. Samkvæmt samtökunum Kick It Out höfðu aldrei borist fleiri tilkynningar um slíkt ofbeldi en á þessu ári.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅