Verktakar vilja byggja til að „fara ekki á hausinn“
Margir verktakar eiga lóðir og eru tilbúnir að byggja innan almenna íbúðakerfisins „til að hreinlega fara ekki á hausinn“, að sögn Ragnars Þórs Ingólfssonar, félags- og húsnæðismálaráðherra.
Þetta kom fram í svörum hans við fyrirspurn Árna Helgasonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, um frumvarp um almennar íbúðir á Alþingi í dag.
Árni gagnrýndi hraða afgreiðslu málsins í velferðarnefnd og spurði hvaða greining og gögn sýndu að verktakar, sem sætu uppi með óseldar íbúðir og háan fjármagnskostnað, gætu ráðist í umfangsmikla uppbyggingu innan kerfisins.
Ragnar vísaði ekki til tiltekinnar greiningar eða gagna í svörum sínum en sagði grafalvarlega stöðu ríkja á byggingarmarkaði. Um málsmeðferðina vísaði hann til þess að meirihluti velferðarnefndar réði verklaginu.
Þá upplýsti ráðherrann að um 2.400 íbúðir stæðu óseldar og að ráðuneytið skoðaði leiðir til að bregðast við þeirri stöðu, meðal annars með kaupleigukerfi.
Sagði frekari rýni hafa verið hafnað
Umræðan fór fram í óundirbúnum fyrirspurnartíma og snerist um frumvarp sem ætlað er að heimila ríkissjóði að fjármagna stofnframlög sveitarfélaga til uppbyggingar almennra íbúða.
Árni sagði aðgerðina hafa verið kynnta í byrjun október í tengslum við framlengingu kjarasamninga. Þrátt fyrir að þá hefði mátt skilja að málið væri nánast tilbúið hefði mánuður liðið áður en frumvarpið barst Alþingi. Það hefði hvorki birst í samráðsgátt né, að því er virtist, verið kynnt hagsmunaaðilum.
Frumvarpið hefði síðan komið beint til velferðarnefndar 5. nóvember og minnihlutanum verið tilkynnt að ljúka ætti afgreiðslu þess á sama fundi. Tillögum um að kalla eftir gestum, umsögnum og frekari rýni hefði verið hafnað.
Að sögn Árna voru skýringarnar þær að tími gæfist ekki vegna ástandsins á fasteignamarkaði. Jafnframt hefði því verið haldið fram að málið væri svo gott að ekki þyrfti að fjalla frekar um það.
„Hvers vegna þetta vinnulag? Hvers vegna liggur svo mikið á að ekki er hægt að vinna málið með eðlilegum hætti?“ spurði Árni.
Hann benti jafnframt á að þrátt fyrir þennan hraða í nefndinni væri málið fyrst að komast á dagskrá þingsins í dag, tæpri viku síðar, sem síðasta mál dagskrárinnar.
Meirihluti nefndarinnar ráði verklaginu
Ragnar sagði upphaflega hafa staðið til að koma málinu til nefndar fyrir þinghlé vegna Norðurlandaráðsþingsins og að það skýrði hugsanlega töfina.
Árni sagðist í síðari ræðu sinni þó litlu nær um verklagið. Þótt mál hefðu verið kynnt og rædd utan þings, og jafnvel samið um þau, breytti það ekki þörfinni fyrir vandaða þinglega meðferð. Hún væri sérstaklega mikilvæg þegar grípa ætti til neyðaraðgerða vegna stöðunnar á byggingarmarkaði.
Ragnar svaraði því til að nefndin, í þessu tilviki meirihluti hennar, réði verklaginu. Fordæmi væru fyrir sambærilegri málsmeðferð við breytingar á úthlutunarreglum stofnframlaga, meðal annars vegna uppkaupa eigna innan almenna íbúðakerfisins í tengslum við eldsumbrot á Reykjanesskaga.
„Ég hafði reyndar bundið vonir við að nefndin yrði tilbúin til að taka þennan slag með okkur,“ sagði Ragnar og vísaði til grafalvarlegrar stöðu á byggingarmarkaði.
Fyrri hækkun ekki skilað tilætlaðri innspýtingu
Árni spurði einnig hvaða vissa væri fyrir því að breytingin skilaði tilætluðum árangri. Hann benti á að stofnframlög ríkisins hefðu í vor verið hækkuð úr 18% í 23% með þeim rökum að nauðsynlegt væri að bregðast við háum fjármögnunarkostnaði og tryggja verkefni á markaðnum.
Sú breyting virtist hins vegar engu hafa skilað. Verktakar hefðu ekki tekið við sér og staðan á byggingarmarkaði versnað.
Ragnar tók undir að hækkunin hefði „kannski ekki“ skilað þeirri innspýtingu sem til var ætlast. Henni hefði verið ætlað að mæta hækkun byggingarkostnaðar og háum fjármagnskostnaði vegna vaxtastigsins. Hún gerði félögum þó kleift að ráðast í mörg verkefni sem hefðu áður verið á mörkum þess að falla að viðmiðum almenna íbúðakerfisins.
Hann sagði frumkvæðið að breytingunum sem nú væru til umræðu koma frá verkalýðshreyfingunni og þær vera hluta af samkomulagi aðila vinnumarkaðarins. Við samráð um kerfið kæmu almennt meðal annars aðilar úr atvinnulífinu, sveitarfélögin, ríkið og verkalýðsfélögin.
Væntingar um árangur tengdi ráðherrann því að frumkvæðið kæmi að hluta frá þeim aðilum sem að uppbyggingunni stæðu. Í byggingageiranum ríkti „hálfgert neyðarástand“.
Spurði hvernig verktakar ættu að geta byggt meira
Árni ítrekaði í síðari ræðu sinni spurninguna um forsendur aðgerðarinnar. Verktakar glímdu við 11–12% vexti, hefðu varið miklu fé í lóðir og sætu uppi með óseldar íbúðir.
Hvaða greining og gögn sýndu að þessi fyrirtæki væru nú í stakk búin til að ráðast í umfangsmikla uppbyggingu innan almenna íbúðakerfisins?
Ragnar tilgreindi ekki slík gögn í svari sínu en sagði marga verktaka eiga lóðir og vera tilbúna að byggja innan kerfisins. Þeim hugnaðist að fara þá leið „til að hreinlega fara ekki á hausinn“.
Kaupleigukerfi til skoðunar
Árni spurði jafnframt hvort til stæði að kaupa þegar byggðar íbúðir sem stæðu tómar. Hann sagði hafa verið rætt um að þær væru jafnvel rúmlega 2.000.
Ragnar boðaði ekki uppkaup en sagði um 2.400 íbúðir standa óseldar og málið vera til skoðunar í ráðuneytinu.
„Ég get alla vega upplýst þingheim um það að við erum að skoða leiðir til að taka á þeim hluta markaðarins líka í kringum kaupleigukerfi.“
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
