Lést eftir langt flug á vegum ICE sem millilenti á Íslandi
Fjölskylda manns sem lést síðastliðið sumar eftir um eins og hálfs sólarhrings langa flugferð á vegum útlendinga- og tollaeftirlits Bandaríkjanna (ICE) krefst nánari skýringa á því hvað kom fyrir hann. Verið var að vísa manninum, sem var frá Pakistan, úr landi í Bandaríkjunum og flogið var með hann ásamt fleirum í sömu stöðu til Pakistan en maðurinn lést fljótlega eftir komuna þangað. Á meðan flugferðinni stóð var millilent í nokkrum löndum, þar á meðal Íslandi en miðað við lýsingar við vitna var heilsa mannsins orðin afar bágborin þegar hingað var komið.
Maðurinn bjó ásamt fjölskyldu sinni í Chicago og fjölmiðlar þar í borg hafa fjallað nokkuð um málið.
Starfshættir umræddrar stofnunar sem er þekktust undir skammstöfuninni ICE (e. United States Immigration and Customs Enforcement ) hafa reynst vægast umdeildir vestanhafs. Hafa starfsmenn stofnunarinnar, síðan Donald Trump tók á ný við forsetaembættinu í janúar 2025, gengið hart fram og farið út um öll Bandaríkin til að finna fólk sem talið er að dvelji í landinu ólöglega. Mörg dæmi eru þó um að fólk með landvistarleyfi sé tekið valdi af götum bandarískra borga og flutt úr landi. Bandarískir ríkisborgarar hafa orðið fyrir barðinu á fulltrúum ICE sem hefur í sumum tilfellum endað með dauða viðkomandi, sem hafa þá verið sakaðir um að hafa ógnað lífi fulltrúanna en það er langt í frá einhugur í bandarísku samfélagi um sú meinta ógn hafi verið raunveruleg.
Harka
Gagnrýnendur ICE benda á að farið sé með fólk sem hafi verið löghlýðið eins og ótínda glæpamenn. Yfirlýst markmið með hertri stefnu gagnvart ólöglegum innflytjendum hafi verið að beina sjónum sérstaklega að þeim sem væru að fremja hvers kyns glæpi, en fremur hafi nýtir þjóðfélagsþegnar verið beittir hörku og sætt ómannúðlegri meðferð. Margrar fregnir hafi verið fluttar af slæmri meðferð sem fólk í haldi ICE hefur orðið fyrir. Samkvæmt gögnum sem bandarískir fjölmiðlar hafa fengið aðgang að hafa 62 einstaklingar látist í haldi ICE síðan Donald Trump tók við forsetaembættinu 20. janúar 2025.
Forsetinn sagði hins vegar í viðtali við 60 minutes eftir að ljóst var að Repúblikanaflokkurinn tapaði þingkosningunum, sem fram fóru fyrir átta dögum að innflytjendastefna ríkisstjórnar hans hafi verið of harkaleg og það hafi átt töluverðan þátt í ósigrinum. Það eru þó enn sem komið er engin merki um að til standi að gera einhverjar tilslakanir.
Heilsuveill
Áðurnefndur maður sem lést eftir flugferðina löngu í sumar hét Ayaz Ahmed og var 61 árs gamall.
Hann var handtekinn í Chicago í sumar en í umfjöllun svæðisstöðvar ABC í borginni segir að hann og fjölskylda hans hafa ákveðið að berjast ekki á móti því að honum yrði vísað úr landi.
Ahmed kom til Chicago árið 1997 frá Pakistan ásamt börnum sínum sem segja að hann hafi aldrei brotið af sér og hafi verið virkur þátttakandi í félagsstarfi í borginni. Þau segja föður sinn hafa séð fyrir fjölskyldunni með rekstri eigin fyrirtækja og að hann hafi verið þeim afar góður faðir.
Hann var hins vegar handtekinn 3. júní síðastliðinn af ICE-liðum fyrir að vera lengur í Bandaríkjunum en vegabréfsáritun hans hafi kveðið á um. Hann var fluttur í varðhaldsstöð ICE í Indiana.
Börn Ahmed segja að heilsu hans vegna hafi dvöl á slíkum stað verið varasöm. Þau fjölskyldan hafi ákveðið að sætta sig við að hann yrði að yfirgefa Bandaríkin og hafi þrýst á um að gengið yrði frá því sem fyrst. Hafi ICE verið sent bréf frá lækni Ahmed þar sem öll hans heilsufarsvandamál voru útlistuð, þar á meðal var sykursýki 2, og öll þau lyf sem hann þyrfti að taka daglega. Heilsu föður þeirra hafi hins vegar hrakað mjög á þeim rúmu tveimur mánuðum sem hann var í varðhaldi.
Bandaríkin - Ísland - Pakistan
Þau segja að faðir þeirra hafi átt erfitt með svefn, erfitt með andardrátt og þrábeðið um að vera sendur til Pakistan.
Börn hans segjast hafa boðið ICE að þau myndu kaupa flugmiða fyrir föður sinn.
Í lok júlí hringdi Amhed úr varðhaldinu og sagði að hann yrði fluttur í flugi á vegum ICE til Pakistan. Hann sagði við son sinn að honum þætti vænt um þau systkinin og bað Guð að vaka yfir þeim. Eftir það heyrðu þau ekki aftur í honum og vissu ekkert um afdrif hans fyrr en þeim var tilkynnt um andlátið.
Nafn hans hvarf úr yfirliti á vefsíðu ICE yfir fólk í haldi og sendiráð Pakistan í Bandaríkjunum vissi ekkert um hvar hann var niðurkominn. Þann 3. ágúst síðastliðinn hringdu ættingjar systkinanna í Pakistan í þau og tilkynntu að faðir þeirra væri látinn.
Sahar segir föður sinn hafa verið heiðarlegan og vinnusaman mann sem hafi ekki átt svona meðferð skilið.
Rannsókn ABC leiddi í ljós að Ahmed og fleiri einstaklingar sem verið var að brottvísa til Pakistan voru fluttir um borð í leiguflugvél á vegum ICE. Skoðuðu fréttamenn stöðvarinnar leið flugvélarinnar, samkvæmt vefsíðunni Flightradar24, sem lagði af stað frá Fort Worth í Texas þann 29. júlí klukkan 7:25 að staðartíma. Flogið var fyrst til Bangor í Maine ríki en það tók um 4 tíma. Því næst var flogið til Íslands og miðað við kort í frétt stöðvarinnar lenti vélin á Íslandi um miðnætti að íslenskum tíma, þennan sama dag, en upplýsingar um lendingar ná ekki svo langt aftur á vefsíðu Keflavíkurflugvallar.
Erfitt er að átta sig á af umfjöllun ABC hversu lengi vélin var á Keflavíkurflugvelli en henni var flogið þaðan til Búlgaríu þar sem lent var að morgni 30. júlí. Förinni var haldið áfram þaðan til Georgíu og loks endaði ferðin að kvöldi til, 30. júlí á herflugvelli í Pakistan, eftir samtals 38 klukkutíma ferð frá Texas.
Féll
Maður sem var í flugvélinni og verið var að brottvísa frá Bandaríkjunum segir að heilsu Ahmed hafi hrakað mjög á meðan ferðinni stóð og þegar komið var á herflugvöllinn í Pakistan hafi fljótlega liðið yfir hann og hann fallið í jörðina. Segir maðurinn að þrátt fyrir það hafi Ahmed ekki fengið læknisaðstoð þegar í stað.
Annar maður sem var um borð segir að þegar vélin lenti á Íslandi hafi komið í ljós að Ahmed hefði misst þvag en samt hafi hann ekki fengið neina læknisaðstoð.
Talsmaður ICE neitar því að nokkuð hafi komið upp á í umræddri flugferð sem hafi snúið að heilsu þeirra sem verið var að flytja á brott til Pakistan og enginn þeirra hafi haft þörf fyrir læknisaðstoð.
Samkvæmt gögnum frá Pakistan var Ahmed látinn þegar komið var með hann á sjúkrahús þar í landi 14 klukkutímum eftir að flugvélin lenti.
Samkvæmt gögnunum voru engir áverkar á líkinu. Ahmed var síðan jarðsettur en börn hans segjast engin svör hafa fengið um hvað nákvæmlega dró hann til dauða.
Talsmaður ICE segir að Ahmed hafi fengið öll sín lyf í fluginu og stofnunin viti ekkert um dauða hans eftir komuna til Pakistan.
Lögmaður sem aðstoðað hefur fjölskylduna segist hins vegar draga það í efa að Ahmed hafi fengið lyfin sín eða læknisaðstoð. Hann hafi við komuna til Pakistan ekki verið með neitt á sér, ekki einu sinni skilríki.
Börn Ahmed ítreka að lokum að þótt faðir þeirra hafi ekki verið með gilt dvalarleyfi í Bandaríkjunum þá réttlæti það ekki svona meðferð og hann hafi svo sannarlega ekki átt skilið að deyja.
Hvað íslensk stjórnvöld vita um þessa umræddu flugferð og aðrar á vegum ICE sem hafa millilent hér á landi er ekki vitað, enn sem komið er.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗