Andrés fyrrum prins að slá sér upp - „Ég er ekki þannig gerð að ég velti mér upp úr fortíð annarra“

Kristinn H. Guðnason

Miðvikudaginn 11. nóvember 2026 22:30

Andrés hefur misst konunglega búsetu og alla titla.

Andrés Mountbatten-Windsor, áður þekktur sem Andrés Bretaprins, er talinn vera að slá sér upp. Hin meinta nýja kærasta er sögð hafa sést margsinnis á óðali hans í Sandringham.

Breska útvarpsstöðin LBC greinir frá þessu.

Andrés er nú sagður vera að slá sér upp með konu að nafni Aliba Bellingham. Aliba er þekkt í félagslífi aðalsstéttarinnar í Bretlandi og dóttir guðmóður Díönu prinsessu.

Andrés missti titla sína og konunglega búsetu seint á síðasta ári, það er vegna tengsla við hinn látna barnaníðing Jeffrey Epstein og grun um að Andrés hafi tekið þátt í brotum. Í febrúar á þessu ári flutti hann til Sandringham í Norfolk héraði, í hús sem stendur á lóð sem tilheyrir ekki hirðinni heldur einkajörð Karls konungs.

Aliba hafnar því að þau séu í ástarsambandi. Ást þeirra á dýrum hafi tengt þau, en vitað er að Andrés er mikill hestamaður.

Aliba Bellingham er dóttir guðmóður Díönu prinsessu.

„Við hittumst öðru hverju og tölum um hesta og hunda,“ sagði Aliba í viðtali við Mail on Sunday. „Það er það sem við eigum sameiginlegt. Okkur kemur vel saman. Hann elskar hestana sína.“

Aliba, sem býr í Norfolk, kemur Andrési einnig til varnar hvað varðar hans mál í fortíðinni.

„Ég er ekki þannig gerð að ég velti mér upp úr fortíð annarra. Ég held að Andrési þyki Norfolk vinsamlegt umhverfi og er viss um að honum eigi eftir að líða vel hér,“ segir hún.

Segir hún að hugsanlega hafi orðrómurinn um samband þeirra byrjað eftir að bandarískur blaðamaður sá að þau hefðu drukkið saman te. Hann hafi lagt saman tvo og tvo og fengið út fimm.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅