Ekki hissa á ákvörðun Péturs
Einar Þorsteinsson formaður borgarráðs og Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar í borginni, tóku báðir til sín á Facebook í dag. Samsett mynd/Eggert Jóhannesson/Sigurður Bogi
Það kom Einari Þorsteinssyni formanni borgarráðs ekki spánskt fyrir sjónir að Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar í borginni, hefði ákveðið að hætta þátttöku í hagræðingarhópi Reykjavíkurborgar.
Þetta kemur fram í Facebook-færslu sem Einar birti í dag.
Pétur kynnti þá ákvörðun sína í dag og sagði of mikinn hraða hafa einkennt vinnu hópsins og að ákvarðanir hafi ítrekað verið teknar án nægilegrar greiningar á öðrum valkostum og mögulegum afleiðingum.
Batt vonir við Pétur
Einar segist hafa bundið vonir við að Pétur myndi efna loforð sitt til kjósenda sinna og að hann hafi í prófkjöri Samfylkingarinnar boðað breytingar.
„En þegar á reynir getur Samfylkingin ekki horfst í augu við að kerfið sem hún bjó til hefur vaxið sér yfir höfuð. Þetta vita kjósendur enda kusu þeir flokka sem töluðu fyrir breytingum,“ segir Einar í færslu sinni.
Einar bætir við að honum hafi fundist Pétur yfirleitt leggja gott til við störf í hópnum en telur hann þó ekki geta stutt aðgerðirnar af pólitískum ástæðum og vandar flokknum hans Péturs ekki kveðjurnar.
„Stefna og eðli flokks hans gerir bara ekki ráð fyrir öðru en því að þeirra eigin óráðsía verði fjármögnuð með sköttum á almenning og hallarekstri,“ segir hann að lokum og bætir við að þeir sem sitja eftir að starfa að hagræðingum muni halda áfram og vanda sig við að gera borgina betri.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/15/1691566.jpg)