Mikill hitafundur í Grindavík
Óhætt er að segja að hitafundur hafi farið fram í Gjánni í Grindavík í dag þar sem kynnt var endurkaupaáætlun fasteignafélagsins Þórkötlu.
Örn Viðar Skúlason framkvæmdastjóri Þórkötlu hóf fundinn á að fara yfir fyrirkomulag áætlunar og að hans máli loknu tók við spurningaflóð frá fundargestum sem allir virðast nokkuð ósáttir við fyrirkomulagið.
Þurfti vatnsglas til að halda málflutningi áfram
Margir fundargestir gripu gæsina og beindu spurningum sínum að Erni og sögðust sumir vilja halda fundinum gangandi fram á nótt ef þess krefst.
Þá varði einn fundargestur það löngum tíma uppi í pontu að hann bað annan fundargest að færa sér vatnsglas þegar málþrekið var farið að segja til sín. Hélt hann svo málflutningi sínum áfram í dágóða stund þar eftir.
Mikla gagnrýni var að heyra á störf Þórkötlu og tók einn svo til máls að þrátt fyrir þá góðu hugmynd sem fasteignafélagið var þá hafi þeim tekist að klúðra öllu. Að auki mátti heyra að ósætti væri um að hvorki hafi mætt fulltrúi úr stjórn Þórkötlu né frá ríkisstjórninni.
Ekki væri hlustað á Grindvíkinga
Sumir höfðu orð á því að fáir Grindvíkingar ættu efni á að festa kaup á eign sinni aftur og að þeim sem hafa fengið leyfi til þess að búa í eignum sínum verði gert að yfirgefa þær og bæinn sjálfan í annað sinn, gangi þeir ekki frá kaupum strax 1. febrúar nk.
Þá fannst öðrum það leitt að Þórkatla hefði ekki hlustað á áhyggjuraddir og hugmyndir Grindvíkinga við gerð þessarar áætlunar og þá hafði einn orð á því að hagsmunasamtök Grindvíkinga, Járngerður, hefðu verið ósátt við áætlunina þegar hún var borin undir þau.
Einn fundargestur ávarpaði salinn og bað alla þá sem ekki bæru traust til Þórkötlu um að standa upp. Var ekki betur séð en að allir fundargestir hefðu risið á fætur.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

