Hornamaðurinn knái í markaham
Hornamaðurinn Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði níu mörk og var markahæsti maður vallarins þegar Kadetten vann öruggan sigur á , 37:25, í efstu deild svissneska handboltans í kvöld.
Óðinn Þór var sjóðheitur í leiknum í kvöld eftir landsliðsverkefni og nýtti níu af ellefu skotum sínum, en eitt marka hans kom af vítalínunni.
Kadetten hefur unnið ellefu leiki af þrettán í deildinni og er í öðru sæti með 23 stig, stigi minna en topplið Kriens.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗