„Hún er svona svipuð og þú nema með aðeins stærri brjóst“
Jólavertíðin í verslunum hér á landi er hafin og mun standa fram að aðfangadegi. Í nýjasta þætti Dagmála rifjuðu þær Marta María Winkel og Edda Gunnlaugsdóttir upp þann tíma þegar þær störfuðu í fataverslunum og týndir menn komu og keyptu föt á eiginkonur sínar.
„Það var svo skemmtilegt, þegar það komu karlar, mikið fyrir jólin og svona og voru að kaupa fín föt á konurnar sínar. Og maður spurði þá: Hvaða stærð notar hún? Og þá sögðu þeir: Já, hún er svona svipuð og þú nema með aðeins stærri brjóst eða aðeins minni brjóst,“ segir Marta María og hlær.
„Það var alltaf svipað og ég nema brjóstastærðin var aðeins minni eða aðeins stærri. Og svo komu konurnar kannski og skiluðu og ég hugsaði bara, áhugavert. Hvað er að körlum? Af hverju eru þeir að miða út frá einhverri brjóstastærð, hvað er það?“
„Ég veit það ekki. Þeir eru auðvitað bara að miða út frá því sem þeir taka eftir,“ segir Edda.
„ Er það ekki? Jú, ég held nefnilega að konur og karlar taki eftir ólíkum hlutum,“ segir Marta María.
Hér fyrir neðan geturðu horft á þáttinn í heild sinni.
内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗