Allar líkur á því að Pochettino verði mættur fyrir leikinn á Anfield

Mauricio Pochettino er sífellt líklegri til að taka við Manchester United og gæti verið mættur á hliðarlínuna þegar liðið heimsækir Liverpool eftir landsleikjahléið.

Þetta kemur fram hjá Mike Keegan, blaðamanni Daily Mail, sem segir viðræður við Argentínumanninn hafa gengið vel.

Samkvæmt Keegan eru samningaviðræður komnar á lokastig og aðeins á eftir að ganga frá nokkrum minni atriðum.

Þar á meðal þarf að ákveða hvort Pochettino stýri bandaríska landsliðinu í tveimur leikjum til viðbótar áður en hann tekur við United.

Bandaríska knattspyrnusambandið hefur nú einnig komið að viðræðunum.

Michael Carrick er enn knattspyrnustjóri United en framtíð hans hefur verið í mikilli óvissu eftir slakt gengi liðsins.

Forráðamenn félagsins eru sagðir íhuga að láta hann fara.

Verði ákvörðun tekin um þjálfaraskipti aukast líkurnar á að Pochettino stýri sínum fyrsta leik gegn erkifjendunum í Liverpool.

Ekkert hefur þó enn verið staðfest opinberlega.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅