Einar Bragi og Arnór markahæstir

Einar Bragi Aðalsteinsson.

Einar Bragi Aðalsteinsson. Ljósmynd/Kristianstad

Einar Bragi Aðalsteinsson skoraði átta mörk og Baldur Fritz Bjarnason sex í 39:33-sigri Kristianstad á Amo í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. 

Einar var markahæsti maður liðsins og Baldur sá þriðji markahæsti. Andri Erlingsson og Ólafur Guðmundsson voru ekki með Kristianstad í kvöld en Gunnar Steinn Jónsson er aðstoðarþjálfari liðsins. 

Arnar Birkir Hálfdánarson skoraði síðasta mark leiksins fyrir Amo en það var eina mark hans í leiknum. 

Einar Bragi mun ganga til liðs við þýska 1. deildarfélagið Göppingen næsta sumar eins og mbl.is greindi frá í gær. 

Kristianstad er í 6. sæti með 12 stig og Amo er sæti neðar með stigi minna.

Arnór frábær í tapi gegn Birgi

Eyjamaðurinn Arnór Viðarsson átti frábæran leik fyrir Karlskrona sem tapaði 33:30 gegn Savehöf á útivelli.

Arnór skoraði 9 mörk og var langmarkahæstur gestanna. Birgir Steinn Jónsson skoraði þrjú fyrir Savehöf. 

Savehöf er í þriðja sæti deildarinnar með 13 stig en Karlskrona er í 10. sæti með 7.

Arnór Viðarsson.

Arnór Viðarsson. Ljósmynd/Bergischer

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅