„Finnið ykkur eiginmann sem þið getið deilt fötum með“
Hjónin Ryan Reynolds og Blake Lively á frumsýningu It Ends With Us í New York í ágúst 2024. AFP/Charly Triballeau
Leikkonan Blake Lively þurfti ekki að leita langt í leit að klæðnaði. Hún fékk skyrtu lánaða úr fataskáp eiginmanns síns, leikarans Ryans Reynolds, og birti speglamynd af sér á Instagram.
„Finnið ykkur eiginmann sem þið getið deilt fötum með,“ skrifaði Lively við myndina. Hún tók þó sérstaklega fram að handtaskan væri ekki í eigu hans.
Skyrtan er frá Thom Browne og skreytt útsaumuðum gæsum. Við hana klæddist Lively tvílitum mokkasínum og bleikum sokkum, með dökkbláan klút um hálsinn. Blá Kelly-taska frá Hermès, úr gallaefni, fullkomnaði klæðnaðinn.
Blake Lively í skyrtu eiginmannsins, Ryans Reynolds. Hún tók þó fram að taskan væri ekki hans. Skjáskot/Instagram
Lively, sem er þekkt fyrir að velja sér sjálf klæðnað án aðstoðar stílista, hefur lítið látið fyrir sér fara opinberlega undanfarið.
Hún sakaði Justin Baldoni, mótleikara sinn og leikstjóra It Ends With Us, um kynferðislega áreitni og að hafa skipulagt herferð til að sverta mannorð hennar. Baldoni hafnaði ásökununum. Eftir langvinnar lagadeilur náðu þau sáttum í maí síðastliðnum.
内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
