Karítas á palli í tveimur mótum
Fimm íslenskir keppendur tóku þátt í svigmótum í Oslo Indoor Skiing Arena, innanhússbrekkunni í Osló, í gær og í dag. Mótin voru hluti af FIS Entry League, mótaröð FIS fyrir unga keppendur.
Þrjár íslenskar stúlkur Karítas Sigurðardóttir (Ármann/IL Heming), Jóhanna Skaftadóttir (Dalvík) og Mundína Ósk Þorgeirsdóttir (SSS) kepptu á sínum fyrstu FIS-mótum á ferlinum.
Karitas keppti í þremur svigmótum og var í fremstu röð í þeim öllum. Hún varð önnur í einu mótanna, aðeins 1,08 sekúndum á eftir sigurvegaranum, og þriðja í öðru, 1,79 sekúndum á eftir.
Í þriðja mótinu hafnaði hún í 4. sæti, 1,68 sekúndum frá sigri. Norska stúlkan Amelia Roer-Amundsen sigraði í öllum þremur kvennamótunum.
Jóhanna varð í 10. sæti í einu mótanna og Mundína Ósk (SSS) í 14. sæti í öðru. Í hinum tveimur mótunum luku þær ekki keppni.
Hrafnkell Gauti kláraði öll mótin
Um 50 keppendur voru skráðir í hvert mót í karlaflokki. Hrafnkell Gauti Brjánsson (Ármann) kláraði öll þrjú mótin og varð í 13., 16. og 18. sæti. Hrafnkell Steinarr Ingvason (Ármann) varð í 24. og 29. sæti en lauk ekki keppni í þriðja mótinu.
Öll fimm stunda þau nám við skíðamenntaskóla í Noregi: Karítas í Dønski, Jóhanna í NTG Lillehammer og Hrafnkell Gauti, Hrafnkell Steinarr og Mundína Ósk í Voss.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗