Valur afgreiddi ÍR í seinni hálfleik

Hafdís Renötudóttir átti stórleik í marki Vals.

Hafdís Renötudóttir átti stórleik í marki Vals. mbl.is/Ólafur Árdal

Valur vann góðan sigur á ÍR, 24:17, í úrvalsdeild kvenna í handbolta á Hlíðarenda í kvöld. Valur er með 14 stig, tveimur stigum minna en topplið Hauka. ÍR er í 5. sæti með 9 stig.

Gestirnir úr Breiðholti byrjuðu betur, skoruðu fyrstu þrjú mörk leiksins og höfðu frumkvæðið í upphafi. Valur náði góðum kafla um miðbik fyrri hálfleiks, skoraði fimm mörk í röð og breytti stöðunni úr 7:3 í 8:7 sér í vil.

ÍR var öflugra á lokakafla fyrri hálfleiks og fór með þriggja marka forskot inn í hálfleik, 12:9.

Einstefna í síðari hálfleik

Valskonur voru fljótar að snúa leiknum sér í vil í síðari hálfleik og komust yfir, 14:13. Þær skoruðu síðan fjögur mörk í röð og breyttu stöðunni úr 14:14 í 18:14 áður en þær tryggðu sér sjö marka sigur.

Valur vann síðari hálfleikinn 15:5 og var þetta sjötti sigur liðsins í röð.

Ásdís Þóra Ágústsdóttir var markahæst hjá Val með fimm mörk og Arna Karitas Eiríksdóttir skoraði fjögur. Landsliðsmarkvörðurinn Hafdís Renötudóttir átti stórleik í marki Vals og varði 15 skot.

Sara Dögg Hjaltadóttir var markahæst hjá ÍR með fimm mörk og Sylvía Sigríður Jónsdóttir skoraði fjögur.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅