Össur rifjar upp daginn sem batt hann og Mörð ævilangri vináttu - „Fárra sakna ég jafn mikið og hans“

Össur Skarphéðinsson, fyrrum formaður, ráðherra og þingmaður Samfylkingarinnar, rifjar upp í einlægum pistli kynni sín af Merði Árnasyni, fyrrum þingmanni flokksins, sem lést í gær. Össur rifjar upp hvernig hann og Mörður bundust ævilöngum vináttuböndum og segist sakna Marðar mjög.

Sjá einnig: Mörður Árnason er látinn

Sjá einnig: Margir minnast Marðar Árnasonar af mikilli hlýju - „Það var aldrei lognmolla í kringum Mörð!“

Össur skrifar um vin sinn:

„Mörður er mér líklega mestur harmdauði à langri ævi. Engan vin hef ég àtt hollari í blíðu - en þó einkum stríðu. Við höfum haldið hópinn, fimm  félagar sem allir unnum saman á Þjóðviljanum, sem er eins konar hirð í kringum Óskar Guðmundsson, fræðimann í Véum í Reykholti. Þar hefur Véabandalagið hist einu sinni í mánuði í nokkra áratugi, laugað sig í Óskarslaug, sem hlaðin er úr sömu steinum og Snorralaug, og hist vikulega á kaffihúsum í Reykjavík. Frá því í sumar var Mörður aðeins strjáll gestur. Daginn áður en hann lést höfðum við þó sammælst um að hittast allir síðast í þessari  viku og tilhlökkunin mest að hitta aftur okkar besta mann. Þar verður nú skarð fyrir skildi.“

Skólinn

Össur og Mörður kynntust þegar þeir voru nemendur í Menntaskólanum í Reykjavík á áttunda áratug síðustu aldar:

„Mörður skipaði mönnum til verka í félagslífinu. Ég hafði leikið aðalhlutverk í Herranótt og unnið smásagnaverðlaun og í partíi útí bæ taldi Mörður einsýnt að ég yrði forseti Listafélagsins. Ég hafði ekki mikinn àhuga à því. "Það er ekki plàss fyrir þig í annað" sagði Mörður. Þar við sat. Þetta varð lýsandi fyrir síðara samstarf - ég fór oftast að ráðum hans og hann átti síðar mestan þátt í að ég lét til leiðast og fór í framboð til fyrsta formanns Samfylkingarinnar.“

Össur segir að það hafi verið Mörður sem hafi fengið hann til að taka í fyrsta sinn á ævinni þátt í mótmælum en það var vegna komu þáverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, William Rogers, ti landsins. Reyndu mótmælendur að koma í veg fyrir að Rogers kæmist til Bessastaða á fund þáverandi forseta Íslands, Kristjáns Eldjárns:

„Löggan kom fylktu liði með lögregluforingjana Óskar Ólason og Bjarka Elíasson í broddi fylkingar. Á afleggjaranum til Bessastaða læstum við höndum saman og til að rjúfa hringinn tók ein löggan Mörð slíku hálstaki að hann roðnaði og blánaði í framan. Mér tókst að losa takið og sagði jafnan síðan þegar við àttum í stælum að hann skyldi hafa sig hægan því enginn ætti meira í líftórunni í honum en ég eftir bardagann við Bessastaði. Þennan dag urðum við Mörður ævilangir vinir.“

Vinstri

Eftir að menntaskólanum lauk störfuðu Mörður og Össur saman í stúdentapólitíkinni í Háskóla Íslands og Össur rifjar upp að á þeim tíma hafi tekist að sameina vinstri sinnaða stúdenta:

„Nokkrar kynslóðir vinstri manna lærðu þá dýrmætu lexíu að sameinaðir vinstri menn gætu orðið sigrandi afl à landsvísu og breytt samfélaginu. Þetta var fyrsti neistinn sem kveikti bálið sem síðar leiddi til stofnunar Samfylkingarinnar.“

Þeir tveir hafi síðan þegar komið var fram á níunda áratuginn sameinast á Þjóðviljanum og gert þar, ásamt fleirum upp við sögu Alþýðubandalagsins og skapað þannig grundvöll að tilkomu Samfylkingarinnar.

Formennskan

Um samstarfið við Mörð þegar komið var fram á nýja öld og hann orðinn formaður Samfylkingarinnar segir Össur:

„Mörður var meðal helstu ràðgjafa minna þegar ég varð, ekki síst fyrir hans orð, fyrsti formaður flokksins. Sjàlfur varð hann þingmaður flokksins í tvö kjörtímabil. Atorka hans og djúpskyggni àtti stóran þàtt í að eftir erfiða byrjun reis flokkurinn úr öskustó eins og fuglinn Fönix og fór með himinskautum. Í kosningunum 2003 þar sem Mörður àtti snaran þàtt í að móta frjàlslynda umbótastefnu hreyfingarinnar nàðum við langmesta fylgi frà upphafi, 31%, eða meira en tvöfalt fylgi Sjàlfstæðisflokksins í síðustu þingkosningum.“

Össur fer þó ekki í grafgötur með að hann og Mörður áttu það til að deila sín á milli en segir þó engan skugga hafa borið á vináttu þeirra:

„Mörður var uppreisnarmaður í eðli sínu og oft í hàlfgerðri uppreisn við formenn sína, þar à meðal mig. Alltaf þó með uppbyggilegum hætti. Skoðanaskiptin, stundum hàvær rifrildi, leiddu þó aðeins til nànari vinàttu með àrunum. Hann var hollastur allra manna sem ég hef þekkt og lét aldrei neinn liggja eftir à vígvellinum. Enginn kynntist því betur en ég sem hann yfirgaf aldrei þegar í nauðir rak. Mörður var vinur í raun.“

Össur heldur áfram:

„Merði var allt gefið. Yfirburðagreind, rökvísi svo af bar, þekking umfram flesta. Hann las fjölda tungumàla, var einkar vel að sér í alþjóðamàlum. Hann forðaði mér og Samfylkingunni frà því að ganga Blairismanum à hönd (sem gerðist ekki fyrr en eftir mína formannsdaga) og er höfundurinn að Palestínu sem baràttumàli frà fyrsta degi. Fàum à ég jafnmikið að þakka úr pólitískri vegferð minni en Merði Àrnasyni. Fàa þótti mér jafnvænt um. Fàrra sakna ég jafn mikið og hans.“

Minningarorð Össurar um Mörð er hægt að lesa í heild sinni hér fyrir neðan.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅