Aðalheiður skipti algjörlega um takt í lífinu - „Á endanum sagði líkaminn bara stopp“
Aðalheiður Jensen heilsuráðgjafi, kennari og eigandi Tilverunnar segist hafa lært með reynslunni að stór hluti af heilsu snúist um að kunna að hægja á sér og hlusta á innsæið og náttúruna. Aðalheiður, sem er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggvasonar segir líf sitt hafa umturnast fyrir um átján árum. En fram að því hafði hún gjarnan æft tvisvar á dag, keppt í fitness og hafði gengið mjög hart að sér:
,,Ég ólst upp úti á landi, á Fáskrúðsfirði og bjó þar alveg til 16 ára aldurs. Þó að ég sakni þess ekki að vera þar finn ég mjög sterkt að mig langar að tengjast meira við náttúruna og fara út úr borginni og streitunni sem fylgir borgarlífinu. Ég finn það í hvert skipti sem ég er úti í náttúru og meiri kyrrð að þar er ég á heimavelli. Þar er ég í mínu rétta ,,elementi” og taugakerfið mitt vill vera í náttúru. Ég hef í áraraðir lært gríðarlega mikið um heilsu og er alltaf að finna innsæið mitt betur og betur.“
Aðalheiður segir kaflaskil hafa orðið í vegferð sinni um lendur heilsu fyrir um 18 árum síðan þegar hún hitti Örn nokkurn Jónsson, sjúkranuddara og heilara:
,,Ég skal bara segja þér hvernig ég hitti Örn fyrst. Fyrir mörgum árum síðan, líklega um 2008, var ég ,,all in“ í ræktinni og var á kafi í bootcamp og fór oft tvisvar á dag að æfa. Svo náttúrulega á endanum sagði líkaminn bara stopp. Ég var að gera einföld hopp þegar ég læstist í bakinu og komst þar af leiðandi ekki á æfingu næstu daga. Tengdarmóðir mín þáverandi benti mér á mann sem væri að hnykkja í Sporthúsinu og ég pantaði tíma hjá honum. Ég var samt daginn sem ég kom til hans með æfingatöskuna í skottinu og var á leiðinni á bootcamp æfingu eftir tímann. Ég hélt bara að hann ætlaði að hnykkja aðeins á mér hálsinn, en hann skoðar mig alla og byrjar að vinna í mér.“
Skipti um takt
„Ég endaði á að vera hjá honum í hátt í tvo tíma og hann sagði mér einfaldlega að ég myndi fá hjartaáfall ef ég myndi ekki skipta um takt í lífinu. Ég var á bleiku skýi þegar ég labbaði út frá honum og þarna urðu bara kaflaskil í lífi mínu. Ég fór aldrei aftur í bootcamp eftir þetta og skráði mig þess í stað í Rope-Yoga nám hjá Guðna Gunnars og endaði á að læra bæði að verða Rope-Yoga kennari og lífsráðgjafi hjá Guðna. Þannig að Örn Jónsson var sá sem leiddi mig á allt aðra braut í lífinu, segir Aðalheiður og heldur áfram:
,,Þarna mætti ég gjarnan á brennsluæfingu á morgnana og styrktaræfingu seinni partinn ofan á fulla vinnu og aðra hluti í lífinu. Ég sé það núna hvað þetta voru orðnar miklar ýkjur. Við Íslendingar erum mörg mjög öfgakennd og erum orðin aftengd náttúrunni eigum það til að ganga allt of hart á okkur. Við hlustum ekki mikið á árstíðirnar og við gerum þær kröfur að allt eigi að vera eins allt árið, þó að birtustigið og annað sé gjörólíkt á sumrin og veturna.“
Aðalheiður talar í þættinum um þær aðstæður sem við komum frá á Íslandi og vegna þess hve harðgerð skilyrðin voru hér á árum áður höfum við enn tilhneigingu til að ofgera okkur og eigum erfitt með að slaka á:
,,Ég hef alveg dottið í sama farið aftur og það gerist held ég hjá flestum. Hraðinn er mikill í samfélaginu okkar og það er auðveld að lenda í streitu. Ég þarf að gera ákveðna hluti til að halda mér í lagi eins og að huga að teygjum og gera ákveðnar öndunaræfingar. En stundum þarf ég að fá höggið til að minna mig á að ég sé komin af réttri braut. Ég veit ekki alveg hvers vegna við þurfum alltaf að fá höggið aftur og aftur til að muna hvað er gott fyrir okkur. En maður er alltaf að læra og smátt og smátt eru alltaf að eiga sér stað framfarir, þó að maður taki ekki alltaf eftir því sjálfur.“
Aðalheiður rekur núna Tilveruna, sem er stúdíó þar sem áhersla er lögð á svokallaða Barre tíma, sem eru til þess fallnir að hafa góð áhrif á stoðkerfið, innri styrk, einbeitingu og jafnvægi:
,,Ég hef gríðarlega sterkt innsæi og er stundum kölluð norn. Ef að vinir mínir myndu lýsa mér þá yrðu örugglega orðin þrautsegja og ákveðni ofan á. Ég er mjög næm á umhverfi mitt og fólk og hef lært það með þroskanum að hlusta á innsæið okkar. Það er stanslaust að tala við okkur, en það er bara svo mikið af áreitum í umhverfinu að stundum getum við ekki heyrt í því. Það var mjög áhugavert hvernig það gerðist að ég stofnaði þetta stúdíó, sem núna er orðinn gríðarstaður fyrir mikið af fólki. Þetta kom upp í hendurnar á mér frá Guðna Gunnars og Gullu konunni hans.“
„Ég var orðin þreytt á því sem ég var að gera og var að velta því fyrir mér hver næstu skref ættu að vera. Eitt af því sem ég komst að var að mig langaði að vera sjálfstæð og fá að stýra hlutunum sjálf. Svo er ég í sundi og rekst þar á Gullu, sem er norn eins og ég og finnur á sér hluti. Hún spyr mig hvernig ég hef það og segir mér svo að heyra í Guðna. Svo allt í einu segir hún: ,,En Alla mín, þarft þú ekki að fara að stofna þitt eigið fyrirtæki?” Ég var þarna búin að vera í þessum pælingum og fann að þarna var alheimurinn að tala við mig. Þau voru á leiðinni út úr Rope-Yoga setrinu og það endaði með því að ég tók við því og stofnaði Tilveruna. Síðan hef ég ekki aftur snúið.“
Hægt er að nálgast viðtalið við Aðalheiðir og öll viðtöl og podköst Sölva Tryggvasonar inni á solvitryggva.is
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗