Þorgerður átti leynifund með stækkunarstjóra ESB
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra fundaði með Mörtu Kos, stækkunarstjóra Evrópusambandsins, í Brussel 15. janúar 2025. Í fréttatilkynningu utanríkisráðuneytisins sama dag var sérstaklega greint frá fundum ráðherrans með Köju Kallas, utanríkismálastjóra ESB, og Maroš Šefčovič, viðskiptamálastjóra sambandsins. Fundarins með Kos var hvergi getið í tilkynningunni.
Meira en ári síðar var upplýst um fundinn í gögnum sem utanríkisráðuneytið tók saman að beiðni utanríkismálanefndar Alþingis. Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, fjallar um málið í nýútkominni bók sinni Þegar Ísland sagði nei. Í bókinni rekur hann aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið.
Björn er gestur Stefáns Einars í Spursmálum.
Björn Bjarnason fyrrverandi ráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra. mbl.is/samsett mynd
Telur að fundarins hafi vísvitandi verið látið ógetið
Í tilkynningu ráðuneytisins kom fram að Þorgerður Katrín hefði kynnt áform ríkisstjórnarinnar um að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna eigi síðar en árið 2027. Þar var einnig greint frá áherslu ráðherrans á að efla samstarf Íslands og Evrópusambandsins og standa vörð um EES-samstarfið.
Spurður í Spursmálum hvort það gæti hafa verið yfirsjón að fundarins með Kos var ekki getið svarar Björn: „Nei, það eru engar líkur á því.“ Að hans mati hefði það breytt því hvernig ferðin kom fyrir sjónir að greina frá því strax að ráðherrann hefði einnig fundað með stækkunarstjóranum.
Björn bendir á að meðan Þorgerður Katrín var í Brussel hafi Guillaume Mercier, talsmaður stækkunarstjórans, sagt í samtali við RÚV að framkvæmdastjórn ESB liti enn á Ísland sem umsóknarríki. Sú afstaða kom einnig fram í tilkynningu ESB um heimsóknina. Þar sagði að umsókn Íslands væri enn talin virk þar sem hún hefði aldrei verið formlega afturkölluð.
Björn Bjarnason ræðir nýja bók sína um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst síðastliðinn. mbl.is/María Matthíasdóttir
Segir ráðamenn í Brussel hafa fengið röng skilaboð
Björn segir í viðtalinu að ráðamönnum ESB í Brussel hafi verið „gefin röng skilaboð um hvað væri að gerast á Íslandi“ í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Að hans mati snerust skilaboðin um líkurnar á því að kjósendur samþykktu að taka upp aðildarviðræður að nýju.
Björn telur að ríkisstjórnin hafi sjálf verið sannfærð um að hún myndi sigra ef atkvæðagreiðslunni yrði flýtt. Ráðamönnum í Brussel hafi jafnframt verið talin trú um að nauðsynlegt væri að standa þannig að málum til að tryggja sigur.
Hann bendir í því samhengi á að í júní 2026 hafi stækkunardeild framkvæmdastjórnarinnar, lagt til við ráðherraráð ESB að hún fengi umboð til að undirbúa viðræður við Ísland. Björn telur það benda til þess að innan deildarinnar hafi menn þá verið orðnir sannfærðir um að Íslendingar myndu segja já.
Sú sannfæring hafi að hans mati byggst á „samtölum við fulltrúa íslenskra stjórnvalda“. Þegar gengið var til atkvæða 29. ágúst höfnuðu kjósendur því að halda aðildarviðræðunum áfram.
Viðtalið við Björn má sjá í heild sinni hér:
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
