Íslensku menntaverðlaunin fyrir framúrskarandi skólastarf
Margrét Jónsdóttir Njarðvík, skólameistari Fjölbrautaskólans í Breiðholti og Sigurður Fjalar Jónsson fagstjóri starfsbrautarinnar taka við verðlaununum fyrir framúrskarandi skólastarf úr hendi forseta Íslands. Ljósmynd/Mummi Lú
Íslensku menntaverðlaunin fyrir árið 2026 voru veitt við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í gæ en útsending frá verðlaununum var á RÚV i kvöld. Verðlaunin eru veitt í fimm flokkum: fyrir framúrskarandi skóla- eða menntaumbótastarf, kennslu, þróunarverkefni, iðn- og verkmenntun, auk sérstakra hvatningarverðlauna.
Með verðlaunaafhendingunni er ætlað að vekja athygli á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístundastarfi með börnum og unglingum og ná til leik-, grunn- og framhaldsskólastigs, sem og til listnáms og félags- og tómstundastarfs.
Auk þess er veitt hvatning til einstaklings, hóps eða samtaka sem stuðlað hafa að menntaumbótum sem þykja skara fram úr.
Framúrskarandi skólastarf í FB
Verðlaun fyrir framúrskarandi skólastarf eða menntabætur fékk Starfsbraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti fyrir að þróa einstaklingsmiðað nám sem hefur það að markmiði að þroska með nemendum hæfni sem gerir þeim fært að takast á við fjölbreytt viðfangsefni daglegs lífs. Vettvangs- og fræðsluferðir, útinám, heimsóknir, ratleikir, verkleg viðfangsefni, sköpun, hreyfing, hönnun og lausnaleit eru dæmi um þær fjölbreyttu kennsluaðferðir sem áhersla er lögð á á starfsbrautinni, en þar er Sigurður Fjalar Jónsson fagstjóri.
Sandra Ómarsdóttir, kennari í Seljaskóla í Reykjavík, tók við verðlaunum sínum frá Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra. Ljósmynd/Mummi Lú
Sandra í Seljaskóla framúrskarandi kennari
Sandra Ómarsdóttir, kennari í Seljaskóla í Reykjavík, hlaut verðlaunin í ár fyrir framúrskarandi sviðslistakennslu. Á hverju ári setur Sandra upp metnaðarfullar og vandaðar leiksýningar með nemendum í Seljaskóla sem hafa vakið verðskuldaða athygli. Sýningarnar þykja einkennast af faglegum vinnubrögðum, ríkri listrænni sýn og vandaðri útfærslu og hafa jákvæð áhrif á skólabrag Seljaskóla.
Elfa Lilja Gísladóttir verkefnisstjóri Söngvavors, Júlíana Rún Indriðadóttur skólastjóri Tónskóla Sigursveins og Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra. Ljósmynd/Mummi Lú
Söngvavor þróunarverkefni í fremstu röð
Verðlaunin fyrir framúrskarandi þróunarverkefni eru veitt verkefninu Söngvavori sem er samstarfsverkefni leikskóla og tónlistarskóla. Elfa Lilja Gísladóttir, verkefnastjóri Söngvavors, og Júlíana Rún Indriðadóttir, skólastjóri Tónskóla Sigursveins, tóku við verðlaununum.
Síðasta vor náði verkefnið til ríflega 3.000 barna í 140 leikskólum og 15 tónlistarskólum víða um land.
Á hverju ári heimsækja leikskólabörn tónlistarskólana og æfa verk eftir íslenskt tónskáld með nemendum á aldrinum 10-16 ára sem leika undir á hljóðfæri. Verkefninu lýkur með tónleikum í menningarhúsum hvers sveitarfélags.
Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, Ásta Fönn Flosadóttir, aðstoðarskólameistari VMA og Haukur Eiríksson, brautarstjóri. Ljósmynd/Mummi Lú
Iðn- og verknám í VMA í fremstu röð
Í ár koma verðlaunin fyrir framúrskarandi iðn- eða verkmenntun í hlut Verkmenntaskólans á Akureyri fyrir sjálfbæra kennslustofu, nýsköpunarverkefni sem þykir til fyrirmyndar um markvissa umhverfismennt. Í skólanum hefur verið sett upp sólarorkuver og aðstaða sköpuð fyrir nemendur til að fást við ýmis verkefni sem tengjast sjálfbærri orkunotkun.
Markmiðið er að útskrifaðir nemendur hafi þekkingu til að leysa orkumál samtímans á sjálfbæran hátt. Ásta Fönn Flosadóttir aðstoðarskólameistari VMA og Haukur Eiríksson brautarstjóri tóku við verðlaunum frá Sigurði Hannessyni, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins.
Kristín Stefánsdóttir iðjuþjálfi og formaður samtakanna, sem standa að Opna leikskólanum MEMMM, og Helga Hreiðarsdóttir, leikskólakennari. Ljósmynd/Mummi Lú
Hvatningarverðlaunin til Opna leikskólans
Hvatningarverðlaun Íslensku menntaverðlaunanna eru veitt einstaklingi, hópi eða samtökum sem stuðlað hafa að menntaumbótum er þykja skara fram úr. Í ár hlýtur þessi verðlaun Opni leikskóli MEMMM fyrir mikilvægt starf í þágu barnafjölskyldna með ung börn.
Opni leikskólinn býður barnafjölskyldum aðstöðu til að hittast, leika, syngja og skapa í örvandi umhverfi og mætir þörfum fjölskyldna sem bíða eftir leikskólaþjónustu. Á síðasta skólaári voru heimsóknir í skólann um 5.200. Skólinn er rekinn af óhagnaðardrifnum félagasamtökum í samstarfi við Reykjavíkurborg. Boðið er upp á listasmiðjur, samverustundir, söngstundir, málörvun, lestrarstundir og fræðslu, og sérstaklega er stutt við erlendar fjölskyldur.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗



