Þjálfari heimsmeistaranna ómyrkur í máli

Luis de la Fuente og Lamine Yamal.

Luis de la Fuente og Lamine Yamal. Samsett/AFP/César Manso & Lluis Gene

Luis de la Fuente, þjálfari spænska karlalandsliðsins í fótbolta, var ómyrkur í máli þegar hann var spurður út í gagnrýni á Lamine Yamal og ásakanir um að leikmaðurinn hefði reynt að komast hjá því að mæta í landsliðsverkefni.

De la Fuente sagði slíkar vangaveltur byggðar á fáfræði og að fjarvera Yamal stafaði eingöngu af meiðslum. Hann hefði fundið fyrir óþægindum í hné og rannsóknir leitt í ljós vökvasöfnun og bólgu.

Í samráði við læknateymi Barcelona hefði því verið ákveðið að hann yrði áfram hjá félaginu og kæmi til móts við landsliðið á föstudag.

„Að tala út frá fáfræði er eitt það sorglegasta og verstu mistökin í lífinu,“ sagði De la Fuente og bætti við að Yamal nyti engra sérkjara hjá landsliðinu.

„Við hefðum tekið sömu ákvörðun fyrir hvaða annan leikmann sem er. Mér er sama um slíka gagnrýni. Við söknum allra leikmanna sem eru ekki með okkur. Svona er fótboltinn og þetta eru meiðsli.“

Rangfærslur og blekkingar

Þjálfarinn var einnig ósáttur við það sem hann sagði vera rangfærslur og lygar í umfjöllun um málið.

„Það sem fer mest í taugarnar á mér eru lygarnar, ónákvæmnin og uppspuninn. Ég þoli ekki fólk sem reynir að blekkja aðra og fara með rangt mál,“ sagði hann.

Yamal er á batavegi og vonast De la Fuente til að Yamal geti æft með liðinu á föstudag. Spánverjar mæta Tékkum í Þjóðadeildinni á fimmtudag og ljóst að sá leikur kemur of snemma fyrir ungstirnið.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅