Málsvarnarlaunin telja í tugum milljóna
Við þingfestingu málsins í síðustu viku var mikið um að vera. 71 er ákærður í málinu og verjendur fjölmargir eftir því. Málsvarnarkostnaður hleypur að öllum líkindum þegar á nokkrum tugum milljóna í málinu. mbl.is/Karítas
Málsvarnarlaun verjenda í Landsbankamálinu svokallaða hlaupa nú þegar líklegast á tugum milljóna og það áður en aðalmeðferð hefst. Málsvarnarlaun þeirra sem hafa þegar játað í málinu og eru ákærðir fyrir minni brot í málinu eru líklegast á bilinu 15-20 milljónir.
Samtals er 71 ákærður í málinu, en af þeim hafa 37–38 neitað sök, nokkrir hafa ekki gefið upp afstöðu eða mætt fyrir dóm og tæplega 30 játað.
20 klukkustundir að lágmarki
Blaðamaður ræddi við nokkra verjendur í málinu, sem hafa játað og þar sem sök er í vægari helmingnum, og spurði út í þann tímafjölda sem liggur á bak við málið. Sögðu þeir að líklega væru verjendur í málinu að lágmarki með 20 klukkustundir, en þingfestingin í síðustu viku var heill vinnudagur og fyrirtakan í dag 3-4 klukkustundir. Þá bætist við tími til að fara yfir ákæru, ræða við sakborninga og önnur vinna tengd málinu. Þess má geta að ákæran og einkaréttarkrafan í málinu eru 153 blaðsíður.
Í dag mættu 32 sakborningar fyrir dóminn og voru flestir með verjanda með sér. Af þeim játuðu 19 og voru 16 málanna kláruð sem játningarmál í dag.
Ef við gefum okkur að tímafjöldi vegna þessara 30 sem hafa játað sé um 20 klukkustundir þá eru það 600 klukkustundir. Viðmælendur mbl.is töldu það þó varlega áætlað og þar sem um meiri vinnu, fleiri skýrslutökur eða yfirferð gagna væri að ræða bættust klukkustundir fljótt við.
Þá eigum við eftir þá 37–38 sem hafa neitað, en þar er líklega sambærilegur tímafjöldi á bak við, jafnvel hærri hjá þeim sem leika stærra hlutverk í málinu. Að lokum hafa einhverjir ekki enn mætt og er spurning hvort þar muni koma til málsvarnarkostnaðar eða ekki.
27.000 króna tímakaup
Samkvæmt reglum dómstólasýslunnar um málsvarnarlaun er tímakaup lögmanna 27 þúsund krónur. Það þýðir að fyrir hverjar 20 klukkustundir reiknast 540 þúsund krónur. Ef það er margfaldað með þeim 30 sem hafa játað eru það 16,2 milljónir.
Ef þeim sem hafa neitað er bætt við eru það aukalega 20,5 milljónir, eða 36,7 milljónir samtals. Ljóst er að þessi tala mun hækka talsvert þegar aðalmeðferð hefst en hún gæti hæglega tekið nokkra daga. Til samanburðar tók Bankastræti-club-málið sjö daga og voru verjendum að lokum dæmdar samtals 123 milljónir í málsvarnarlaun, eða 4,9 milljónir að meðaltali á hvern sakborning.
Túlkakostnaður bætist við
Vert er að hafa í huga að hér er ekki tekinn með kostnaður við túlka, en stór hluti ákærðu í þessu máli hefur ekki íslensku sem móðurmál. Í dag túlkuðu túlkar meðal annars á ensku, rúmensku og rússnesku.
Samkvæmt lögum um meðferð sakamála er það íslenska ríkið sem greiðir fyrst allan sakarkostnað úr ríkissjóði, en á svo endurkröfu á sakborninga eftir því sem þeir eru dæmdir til að greiða. Það fer svo eftir stöðu hvers og eins hversu stór hluti þeirrar upphæðar fæst endurgreiddur.
Um hvað snýst málið?
Í málinu er í heild 71 maður ákærður. Tveir menn eru ákærðir fyrir að hafa nýtt sér kerfisvillu í netbanka Landsbankans til að millifæra rúmlega 120 milljónir króna, en þeir neituðu sök við þingfestingu málsins í síðustu viku.
Fjórir til viðbótar eru svo sagðir gegna lykilhlutverki í að koma fjármunum áfram inn á aðra einstaklinga og neita einnig sök við alvarlegustu ásökunum í ákæru.
Þá eru 65 ákærðir fyrir peningaþvætti með því að hafa tekið á móti millifærslum og í mörgum tilfellum tekið fjármuni út í reiðufé og afhent höfuðpaurunum gegn þóknun. Samkvæmt ákærunni millifærðu mennirnir samtals 120,3 milljónir króna í 218 færslum á tímabilinu 11. til 28. október 2025. Ólögmætur ávinningur af háttseminni er talinn hafa numið 95,6 milljónum króna.
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
