Myndi heimila sviptingu á ríkisborgararétti

Fráfarandi mið-hægristjórn undir forystu Ulfs Kristersson forsætisráðherra greindi frá því í fyrra að hún væri að skoða leiðir til að svipta fólk með tvöfaldan ríkisborgararétt ríkisborgararétti ef það hlyti dóm í málum sem tengjast skipulagðri glæpastarfsemi og glæpagengjum. AFP/Wojtek Radwanski

Sænska þingið samþykkti í dag stjórnarskrárbreytingu sem heimilar að svipta fólk með tvöfaldan ríkisborgararétt sænskum ríkisborgararétti hafi það fengið hann með svikum eða verið sakfellt fyrir glæpi sem ógna þjóðarhagsmunum.

Breytingin var samþykkt með 292 atkvæðum gegn 51. Þar sem nýlegar kosningar skiluðu ekki afgerandi niðurstöðu kemur það aftur á móti í hlut næstu ríkisstjórnar að leggja fram frumvarp til að hrinda henni í framkvæmd.

Með breytingunni verður unnt að setja lög sem heimila að svipta fólk með tvöfaldan ríkisborgararétt sænskum ríkisborgararétti hafi það fengið hann á „röngum forsendum“ eða verið sakfellt fyrir glæpi sem skaða „mikilvæga hagsmuni“ Svíþjóðar alvarlega.

Krafðist tveggja atkvæðagreiðslna

Fráfarandi mið-hægristjórn undir forystu Ulfs Kristersson forsætisráðherra, sem nýtur stuðnings innflytjendaandstæðinga í Svíþjóðardemókrötum á þingi, greindi frá því í fyrra að hún væri að skoða leiðir til að svipta fólk með tvöfaldan ríkisborgararétt ríkisborgararétti ef það hlyti dóm í málum sem tengjast skipulagðri glæpastarfsemi og glæpagengjum.

Til þess þurfti að breyta stjórnarskránni, en slík breyting krefst tveggja atkvæðagreiðslna á þingi með kosningum á milli, og atkvæðagreiðslan í dag var sú síðari.

Kristersson fer nú fyrir starfsstjórn á meðan flokkarnir reyna að mynda nýja ríkisstjórn eftir kosningarnar 13. september.

Kemur í hlut næstu ríkisstjórnar

Fráfarandi ríkisstjórn hafði unnið að frumvarpi sem er þó ekki enn fullbúið.

Það kemur því í hlut næstu ríkisstjórnar að ákveða framhaldið – til dæmis að skilgreina hvaða glæpir gætu leitt til sviptingar ríkisborgararéttar.

Mannréttindasamtök hafa gagnrýnt ráðstöfunina.

„Í reynd myndi tillagan skapa tvenns konar sænskan ríkisborgararétt: annan traustan og hinn veikan og skilyrtan. Þetta vekur alvarlegar spurningar um jafnræði fyrir lögum,“ sagði Aida Samani, yfirlögfræðiráðgjafi hjá Civil Rights Defenders, í yfirlýsingu fyrir atkvæðagreiðsluna í dag.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅