Írland - Ísland, staðan er 73:81
Ísland vann sterkan útisigur á Írlandi, 81:73, í fyrsta leik liðanna í forkeppni undankeppninnar fyrir Evrópumót kvenna í körfubolta sem fram fer árið 2029. Leikið var í Dublin á Írlandi.
Leikurinn var kaflaskiptur því Ísland var með 21:17-forskot eftir fyrsta leikhluta. Írar svöruðu með 25:17-sigri í öðrum leikhluta og var írska liðið því með 42:38-forskot í hálfleiknum.
Íslenska liðið svaraði mjög vel í þriðja leikhluta og var staðan 63:57, Íslandi í vil, eftir glæsilegar lokamínútur í leikhlutanum.
Liðin skiptust á að skora í fjórða leikhlutanum og eftir mikla spennu reyndist íslenska liðið sterkara á lokakaflanum en Írar jöfnuðu skömmu fyrir leikslok.
Hin 18 ára gamla Rebekka Rut Steingrímsdóttir var stigahæst í íslenska liðinu með 18 stig. Hin 16 ára gamla Berglind Katla Hlynsdóttir gerði 14, eins og fyrirliðinn Sara Rún Hinriksdóttir.
Kristrún Ríkey Ólafsdóttir skoraði tvær þriggja stiga körfur á lokakaflanum og endaði með átta stig, eins og Diljá Ögn Lárusdóttir.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗