Ráðleggja Pochettino að selja þennan mann - Allir stjórar reknir sem hann kemur nálægt
Matthijs de Ligt, varnarmaður Manchester United, hefur verið á milli tannanna á stuðningsmönnum félagsins vegna ótrúlegrar tölfræði sem tengist knattspyrnustjórum hans.
Hollendingurinn hefur nefnilega haft nýjan knattspyrnustjóra í upphafi hvers einasta tímabils á atvinnumannsferli sínum.
Verði Michael Carrick rekinn, eins og búist er við, gæti De Ligt fengið sinn tólfta knattspyrnustjóra.
Mauricio Pochettino er talinn líklegastur til að taka við United og stuðningsmenn hafa þegar byrjað að gera grín að svokallaðri bölvun varnarmannsins.
„Pochettino, ég biðst fyrirfram afsökunar,“ skrifaði einn stuðningsmaður á samfélagsmiðlum.
Annar sagði: „Pochettino rekst á De Ligt á Carrington og áttar sig á því að hann verður næstur.“
De Ligt gekk til liðs við United frá Bayern München árið 2024 en hefur glímt við meiðsli og óstöðugleika síðan.
Hann missti meðal annars af 276 dögum vegna bakmeiðsla á síðasta tímabili.
Enn hefur ekkert verið staðfest um framtíð Carrick.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗