Landsréttur þurfi ekki að vera í Reykjavík en verði að vera á höfuðborgarsvæðinu
Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 11. nóvember 2026 21:00
Landsréttur hefur aldrei verið í Reykjavík þó að lög segi til um það.
Meirihluti allsherjar- og menntamálanefndar vill að frumvarp Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra um breytingu á lögum um dómstóla verði samþykkt. Landsréttur þurfi ekki að flytja úr Kópavogi en mikilvægt sé að hann muni ávallt hafa aðsetur á höfuðborgarsvæðinu.
Þorbjörg Sigríður lagði fram frumvarp í október um breytingu á dómstólalögum. Meðal annars hvað varðar aðsetur dómstóla.
Fannst ekki gott hús í Reykjavík
Í núverandi lögum segir að Landsréttur, sem var stofnaður árið 2016, eigi að vera í Reykjavík. Landsréttur er hins vegar í Kópavogi, nánar tiltekið á Kársnesinu, vegna þess að ekki hefur fundist hentugt húsnæði fyrir hann innan borgarmarkanna. Voru sett bráðabirgðalög sem heimiluðu þetta. En bráðabirgðalögin eru brátt að renna úr gildi.
Samkvæmt frumvarpi ráðherra verða tekin úr lögum skilyrði þess að Landsréttur verði í sveitarfélaginu Reykjavík. Þess í stað mun aðeins segja „þar sem dómstóllinn hefur aðsetur.“
Í greinargerð frumvarpsins segir hins vegar að gert sé ráð fyrir að Landsréttur muni ávallt hafa aðsetur á höfuðborgarsvæðinu. Meirihluti allsherjar- og menntamálanefndar tekur undir þetta í áliti.
Segir þar að mikilvægt sé að Landsrétti séu tryggð góð starfsskilyrði til nánustu framtíðar og að aðbúnaður taki mið af þörfum starfseminnar, ekki síst hvað varðar öryggismál. Tekið er undir brýningar í umsögnum Dómstólasýslunnar og Landsréttar sjálfs um að farið verði í tilteknar framkvæmdir til að tryggja betur öryggi dómara, starfsfólks og annarra sem eiga erindi í húsið sem stendur við Vesturvör 2.
Öryggiskröfur
„Samhliða nauðsynlegum endurbótum á núverandi húsnæði telur meiri hlutinn að huga þurfi að framtíðarsýn hvað varðar fullnægjandi húsnæði fyrir dómstólinn þar sem gætt verði að þeirri sérstöðu og skipulagi sem starfsemi dómstóla krefst,“ segir í álitinu. „Í ljósi þess að ekki liggur fyrir tillaga um flutning Landsréttar í annað húsnæði að svo stöddu telur meiri hlutinn rétt að fallið verði frá ákvæði í núgildandi lögum sem mælir fyrir um staðsetningu dómstólsins í Reykjavík. Meiri hlutinn tekur þó undir það sem fram kemur í greinargerð með frumvarpinu um að gengið verði út frá því að Landsréttur muni ávallt hafa aðsetur á höfuðborgarsvæðinu.“
Þingmenn stjórnarflokkanna og Sjálfstæðisflokks undirrita álitið en ekki er þar að finna nöfn nefndarmanna Miðflokks og Framsóknarflokks.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗