Jenner fækkar fötum fyrir tekíla

Kendall Jenner er ekki aðeins gullfalleg heldur einnig eiturklár.

Kendall Jenner er ekki aðeins gullfalleg heldur einnig eiturklár. AFP

Bandaríska raunveruleikastjarnan, fyrirsætan og viðskiptakonan Kendall Jenner, sem skaust upp á stjörnuhimininn sem hluti af hinni heimsfrægu Kardashian-fjölskyldu, fór úr fötunum fyrir nýjustu auglýsingaherferð tekílamerkisins 818, sem hún stofnaði árið 2021. Í auglýsingunni sést Jenner, 31 árs, rölta um engi á evuklæðunum.

Herferðin ber heitið Nothing Extra, sem þýða má sem „ekkert auka“, og á nektin að undirstrika að engin óþörf efni séu í tekílanu. Samkvæmt kynningu herferðarinnar eru innihaldsefnin aðeins þrjú: blár agavi, vatn og ger.

Jenner gengur meðal annars um með körfu fulla af plöntum í fanginu og á milli þeirra glittir í tekílaflöskur. Hún tínir blóm og röltir um í umhverfi sem minnir einna helst á aldingarðinn Eden. Einnig sést hún hella tekíla í glas og fá sér sopa. 

Í auglýsingunni er leikið með hugmyndina um nekt, bæði Jenners og tekílans, sem er sagt án viðbættra bragð- og sætuefna. Þegar sögumaðurinn lýsir tekílanu sem „nánast nöktu“ og ætlar að segja það sama um Jenner grípur hún fram í: „Alls ekki nakin.“ Þá birtist hún í hvítum sumarkjól með tekílaglas í hendi.

Auglýsingin var birt á YouTube fyrir tveimur dögum og hefur þegar fengið hátt í 25 þúsund áhorf. Jenner deildi henni einnig með 277 milljónum fylgjenda sinna á Instagram, þar sem fjölmargir hafa ritað athugasemdir.

People

内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅