United hefur hafið formlegar viðræður við Bandaríkin - Óvíst hvenær Poch tæki við
Manchester United hefur sett sig formlega í samband við bandaríska knattspyrnusambandið vegna mögulegrar ráðningar á Mauricio Pochettino, landsliðsþjálfara Bandaríkjanna.
Búist er við að Michael Carrick verði rekinn úr starfi á morgun.
David Ornstein, fréttamaður The Athletic, greinir frá þessu en samkvæmt heimildum miðilsins færist ráðning Argentínumannsins sífellt nær.
Pochettino, sem er 54 ára gamall, er samningsbundinn bandaríska knattspyrnusambandinu og þarf United að virkja sérstakt ákvæði í samningi hans til að fá hann lausan undan samningsskyldum sínum.
Þá þarf enska félagið einnig að greiða aukalega fyrir að fá aðstoðarmenn Pochettino með honum til Manchester.
Samkvæmt Ornstein er Manchester United þó tilbúið að sýna sveigjanleika varðandi tímasetningu ráðningarinnar.
Forráðamenn félagsins eru sagðir sáttir við að Pochettino stýri bandaríska landsliðinu í næstu verkefnum áður en hann tekur við stjórnartaumunum á Old Trafford. Liðið á leik um helgina og aftur í næstu viku.
Pochettino þekkir vel til í ensku úrvalsdeildinni eftir að hafa áður stýrt Southampton, Tottenham og Chelsea.
Ekki hefur enn verið gengið frá samkomulagi en viðræður virðast vera komnar á lokastig.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗