Gera ráð fyrir 531 milljóna afgangi í Mosfellsbæ
Fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar var lögð fram til fyrri umræðu bæjarstjórnar í dag. Ljósmynd/Mosfellsbær
Í fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar fyrir árið 2027 er gert ráð fyrir 531 milljón króna rekstrarafgangi í A- og B-hluta bæjarins. Rekstrarafgangur A-hluta er áætlaður 266 milljónir króna.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Mosfellsbæ, en fjárhagsáætlunin var lögð fram til fyrri umræðu bæjarstjórnar í dag.
Að auki er gert ráð fyrir 270 milljóna króna hagræðingu í rekstri sem er um 1,2% af rekstrarútgjöldum bæjarins.
Gjaldskrár hækka um 2,5%
Þá er áætlað að Mosfellsbær fjárfesti fyrir tæpa 4,4 milljarða króna á næsta ári. Meðal verkefna eru framkvæmdir við íþróttasvæðið að Varmá, endurbætur á skólahúsnæði og gatnaframkvæmdir.
Að auki er tekið fram að útsvar haldist óbreytt í 14,97% en að gjaldskrár hækki almennt um 2,5%. Þá lækkar álagningarhlutfall fasteignaskatts á íbúðarhúsnæði úr 0,190% í 0,187%. Þrátt fyrir það er gert ráð fyrir að fasteignaskattur hækki að meðaltali um 2,1% vegna hækkunar fasteignamats.
„Í þessari fyrstu fjárhagsáætlun meirihluta Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar leggjum við áherslu á traustan og ábyrgan rekstur í afar krefjandi rekstrarumhverfi. Verðbólga, launahækkanir og fjármagnskostnaður hafa sett mikinn þrýsting á rekstur sveitarfélaga. Við viljum halda álögum hóflegum og styðja við íbúa og fjölskyldur í sveitarfélaginu,“ er í tilkynningunni haft eftir Hilmari Gunnarssyni bæjarstjóra Mosfellsbæjar.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
