Auðvelt hjá Magdeburg

Ómar Ingi Magnússon.

Ómar Ingi Magnússon. mbl.is/Eyþór

Ómar Ingi Magnússon skoraði ellefu mörk í stórsigri Magdeburg 43:32 í þýsku bikarkeppninni í handbolta í kvöld. 

Fimm marka Ómars komu af vítalínunni en tvö víti fóru forgörðum hjá Selfyssingnum.

Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði fjögur mörk úr fimm skotum og gaf fimm stoðsendingar. Elvar Örn Jónsson komst ekki á blað en varði eitt skot í vörninni. 

Einar Þorsteinn Ólafsson lék ekki með Hamburg vegna meiðsla. 

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅