Góðar fréttir fyrir landsliðið

Ýmir Örn Gíslason.

Ýmir Örn Gíslason. AFP/Johan Nilsson

Ýmir Örn Gíslason, landsliðsmaður í handknattleik, er mættur aftur á handboltavöllinn með Göppingen í Þýskalandi eftir rúmlega tveggja mánaða fjarveru.

Ýmir braut bein í hægri hendi í gegn Melsungen í 2. umferð þýsku 1. deildarinnar 2. september síðastliðinn. 

Línumaðurinn missti af landsleikjunum gegn Úkraínu og Eistlandi í undankeppni EM í síðustu viku vegna meiðslanna.

Hann nýtti landsleikjahléið til frekari rannsókna hér á landi en er nú snúinn aftur til æfinga hjá Göppingen og spilaði í naumum sigri liðsins, 34:33, gegn Balingen í þýsku bikarkeppninni í kvöld. 

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅