„Rétti tíminn til að sameina púnsskál og ausu“
Ólafur færir Ágústu Kristófersdóttur frkvstj. munasviðs og Hörpu Þórsdóttur þjóðminjaverði ausuna. Ljósmynd/Þjóðminjasafnið
„Ég las Morgunblaðið á fimmtudag í síðustu viku og sá myndina af púnsskálinni og umfjöllun um hennar líklegu sögu. Ég hugsaði þá til grips í minni eigu, silfurausu úr búi þeirra hjóna Ólafs Stefánssonar stiftamtmanns og Sigríðar Magnúsdóttur,“ segir Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, sem kom færandi hendi í Þjóðminjasafnið í vikunni með silfurausu.
Tilefni heimsóknar Ólafs var að í Morgunblaðinu 29. október sl. var umfjöllun um púnsskál úr fórum Stephensen-fjölskyldunnar. Greinin vakti áhuga Ólafs sem í kjölfarið hafði samband við safnið. Ólafur er meðal afkomenda þeirra hjóna Ólafs Stefánssonar og Sigríðar Magnúsdóttur og sonur Þóris heitins Stephensen, dómkirkjuprests og staðarhaldara í Viðey.
Ausan notuð í frægu boði
„Það var upplýst ágiskun föður míns, sem var mikill áhugamaður um sögu ættarinnar, að ausan hefði einmitt verið notuð í þessu fræga boði í Viðey árið 1809 þar sem Ólafur forfaðir minn drakk Jörund hundadagakonung undir borðið,“ segir Ólafur um ausuna, sem nú hefur „sameinast“ púnsskálinni.
Nú er í gangi sýningin Með sögu í farangrinum – Brúðarbúningurinn í Þjóðminjasafninu, en á henni er miðpunkturinn einn ríkulegasti faldbúningur í sögu landsins, sem var lengi talinn hafa glatast í skipskaða undan ströndum Íslands árið 1809. Brúðarbúningurinn tengist ætt Ólafs, því hann kemur úr eigu kvenna í Stephensen-fjölskyldunni sem á þessum tíma var valdamesta og efnaðasta fjölskylda landsins.
„Ég hreinlega vissi ekki að það væri í gangi sýning á Þjóðminjasafninu sem fjallaði að stórum hluta um mína ættarsögu. En ég hugsaði með mér að fyrst svo væri þá væri ausan betur komin á sýningunni heldur en inni í skáp hjá mér. Ég ákvað að nú væri rétti tíminn til að sameina púnsskál og ausu á ný og færði Þjóðminjasafninu ausuna að gjöf,“ segir Ólafur.
Ausan verður sýnd á sýningunni og Harpa Þórsdóttir þjóðminjavörður segist mjög ánægð með þennan fallega silfurgrip sem nú bætist í safnkostinn. „Það er alltaf ánægjulegt þegar sögulega mikilvægir gripir rata í Þjóðminjasafnið úr fórum fjölskyldna sem hafa varðveitt þá um langan tíma og miðlað áfram þeim frásögnum sem við þá tengjast,“ segir hún.
Efnt til hópferðar
Ólafur segir mikilvægt að almenningur geti séð svona forngripi á safni, frekar en að þeir séu ofan í skúffum heima hjá fólki. „Ég lærði talsvert um þessa áa mína af því að skoða sýninguna. Það voru fleiri í fjölskyldunni sem ekki vissu að þarna væri búið að safna saman þessum stórmerkilega fróðleik og gripum. Við munum örugglega efna til hópferðar Stefánunga á Þjóðminjasafnið.“
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/1/1690152.jpg)
