Góðar fréttir fyrir landsliðið
Ýmir Örn Gíslason, landsliðsmaður í handknattleik, er mættur aftur á handboltavöllinn með Göppingen í Þýskalandi eftir rúmlega tveggja mánaða fjarveru.
Ýmir braut bein í hægri hendi í gegn Melsungen í 2. umferð þýsku 1. deildarinnar 2. september síðastliðinn.
Línumaðurinn missti af landsleikjunum gegn Úkraínu og Eistlandi í undankeppni EM í síðustu viku vegna meiðslanna.
Hann nýtti landsleikjahléið til frekari rannsókna hér á landi en er nú snúinn aftur til æfinga hjá Göppingen og spilaði í naumum sigri liðsins, 34:33, gegn Balingen í þýsku bikarkeppninni í kvöld.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗