Landsliðskonan fljót að minna á sig

Guðrún Arnardóttir og Ída Marín Hermannsdóttir fagna marki gegn Króatíu saman. Ljósmynd/Alex Nicodim

Ída Marín Hermannsdóttir heldur áfram að skora fyrir sænska liðið Hammarby sem vann stórsigur, 4:0, á Spartak Myjava frá Slóvakíu í Evrópubikar kvenna í fótbolta í kvöld. 

Hammarby vann einvígið samanlagt 7:1 og er komið í átta liða úrslit. Ída Marín kom inn á sem varamaður eftir klukkustundar leik og kom boltanum í netið stundarfjórðungi síðar þegar hún skoraði annað mark Hammarby. Guðrún Arnardóttir lék allan leikinn í miðri vörn Hammarby.

Hafrún og Diljá áfram en Hlín og Selma úr leik

Bröndby vann 2:0-sigur á Rosenborg í Danmörku og einvígið 3:1. Hafrún Rakel Halldórsdóttir lék allan leikinn í vinstri bakverðinum hjá Bröndby en Selma Sól Magnúsdóttir var á varamannabekk Rosenborg. 

Diljá Ýr Zomers lék fyrstu 65 mínúturnar þegar Brann vann stórsigur, 5:1, á pólska liðinu Czarni Sosnowiec. Brann vann einvígið samanlagt 8:1.

Hlín Eiríksdóttir var ónotaður varamaður þegar Malmö féll úr keppni eftir 2:0-tap gegn Ajax á heimavelli. Malmö vann fyrri leikinn á útivelli 2:1 en tapaði samanlagt 3:2.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅