Heiðdís Rós farin til Dubai

Heiðdís Rós Reynisdóttir förðunarmeistari er ævintýragjörn.

Heiðdís Rós Reynisdóttir förðunarmeistari er ævintýragjörn. Skjáskot/Instagram

Förðunarmeistarinn og áhrifavaldurinn Heiðdís Rós Reynisdóttir er lent í Dubai eftir nokkurra mánaða stopp á Íslandi. Í lok júlí á þessu ári sagðist hún vera komin aftur til landsins og birti mynd af sér á Austurvelli í síðum hlébarðakjól. Þetta var í fyrsta skipti sem hún kom til landsins eftir fimmtán ár í Bandaríkjunum en þar hafði hún búið meðal annars í Los Angeles og Miami.

Nú ætlar hún sér að taka yfir Sameinuðu arabísku furstadæmin.

„Heiðdís á ferðinni tekur yfir Dúbaí,“ skrifar hún við mynd af sér á samfélagsmiðlum. Þar er hún klædd í korselett og stutt pils með háum hælum.

Heiðdís starfaði upphaflega í Los Angeles sem förðunarfræðingur. Síðustu ár hefur hún þó eignast stóran aðdáendahóp á samfélagsmiðlum. Hún ætlar sér eflaust að halda áfram að deila lífsins ævintýrum með fylgjendum sínum áfram í nýju landi.

Flúði Los Angeles og fór til Miami

Heiðdís var búsett í Los Angeles í meira en áratug áður en hún flutti til Miami. Hún sagði í viðtali við mbl árið 2021 að hún hefði flúið borg englanna vegna þess að fyrrverandi kærasti hennar hefði beitt hana miklu heimilisofbeldi.

„Þetta var ást við fyrstu sýn og vorum við lík að sumu leyti. En ég fór að sjá aðra hlið á honum og uppgötvaði aðra hlið á honum þegar lengra leið á sambandið. Ég fór að taka eftir miklum skapsveiflum. Við vorum kannski að dansa í eldhúsinu og næstu tíu mínúturnar öskraði hann á mig og rakkaði niður. Hann byrjaði ítrekað að slá til mín, bíta mig, taka um hálsinn á mér, henda mér til og frá og segja að ég sé viðbjóðsleg og tala illa um fjölskylduna mína. Þetta var ekki bara ofbeldi gegn mér heldur hafði þetta mikil áhrif á fjölskylduna mína líka,“ sagði Heiðdís í viðtalinu.

内容来自 Mbl.is - Ferðalög,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅