Konan sem birtir brjóstamyndir á hverjum degi með nýjan boðskap - „Hvernig veistu hvort stelpa sé trygglynd?“
Skylar Skye, stuðningskona Manchester United og OnlyFans-stjarna, hefur enn á ný vakið athygli á samfélagsmiðlum vegna ástar sinnar á félaginu.
Skye hefur áður heitið því að birta ögrandi myndir af sér þar til Michael Carrick verður rekinn sem knattspyrnustjóri United. Nú stefnir í að Carrick verði rekinn í vikunni.
Hún hefur því sent fylgjendum sínum önnur skilaboð. Skye birti myndband frá Old Trafford þar sem hún klæddist treyju Manchester United.
„Finndu þér stelpu sem heldur með United og þá ertu í góðum málum það sem eftir er,“ skrifaði hún við myndbandið.
Hún bætti síðan við. „Hvernig veistu hvort stelpa sé trygglynd? Hún heldur með Manchester United.“
Skye, sem er með um 200 þúsund fylgjendur á Instagram, var á Old Trafford þegar United vann dramatískan endurkomusigur gegn Roma í Meistaradeildinni.
Hún gerði sér lítið fyrir og eignaði sér hluta af heiðrinum fyrir sigurinn. „Ef United vinnur vitið þið hverjum þið eigið að þakka,“ skrifaði hún fyrir leikinn og sagðist vera í sínum uppáhalds brjóstahaldara sem færði fólki lukku.
Eftir sigurinn birti hún önnur skilaboð þar sem hún þakkaði sjálfri sér fyrir framlagið.
Skye hefur jafnframt lýst yfir óánægju með eigendur United og sagst ætla að halda mótmælum sínum áfram þar til Glazer-fjölskyldan og INEOS yfirgefa félagið.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗