Milljónir manna komu saman til að sjá Leó Páfa
Erlent | AFP | 11.11.2026 | 20:00
Yfir þrjár milljónir manna komu saman til þess að berja páfann augum í Argentínu í dag.
Þarlendir embættismenn greina frá því við AFP-fréttaveituna.
Messa Leós páfa er sú fjölmennasta sem hann hefur haldið í reisu sinni um Suður-Ameríku hingað til.
Páfinn er á fjögurra daga ferðalagi um Argentínu. Javier Milei forsætisráðherra landsins heilsaði páfanum með virktum þegar hann steig út úr einkaþotu sinni í gær.
Leó páfi fór í aðgerð vegna krabbameins í lungum fyrir um þremur vikum en ber sig þrátt fyrir það vel.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗


