Of kalt til að fræsa að nóttu til

Vegagerðin ætlar að flýta framkvæmdum við Kringlumýrarbraut til að létta á umferðinni. mbl.is/Árni Sæberg

Of kalt er orðið til fræsingar og malbikunar á nóttunni. Þess vegna standa framkvæmdir yfir að degi til og þar á meðal á háannatíma líkt og borgarbúar höfuðborgarsvæðisins upplifðu í dag. 

G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar, greinir frá þessu í samtali við mbl.is spurður um hvers vegna ekki væri ráðist í framkvæmdir utan háannatíma.

Peningar spila þar einnig rullu en G. Pétur segir Vegagerðina hafa átt afgangsfé til fræsingar og malbikunar og því hafi hún viljað ráðast í framkvæmdirnar núna fremur en að láta þær bíða.

Megi ekki raska svefnró í íbúahverfi

G. Pétur segir líka að ávallt verði að huga að því hvar framkvæmdir séu að nóttu til, ekki megi raska ró íbúa í nærliggjandi byggð.

Miklar umferðartafir urðu í dag vegna framkvæmda á rampi sem teygir sig af Bústaðavegi niður á Hafnarfjarðarveg í átt að Kópavogi. Þeim framkvæmdum er nú lokið frá og með klukkan fimm í dag en þær hófust klukkan níu í morgun.

Þá var einnig mikil umferð í gær vegna framkvæmda í Grafarholti. 

Framkvæmdir eru fyrirhugaðar á morgun á Bústaðavegi sem teygja sig niður rampinn í átt að Kringlumýrarbraut. 

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅