Daníel segir sögur af goðsögnum íslenskrar tónlistarsögu: „Það eru minningar þarna sem eru bara á bláþræði“

Daníel Andri Eggertsson, gítarleikari í hljómsveitinni Færibandinu, hefur vakið athygli á samfélagsmiðlum að undanförnu fyrir myndbönd þar sem hann rifjar upp sögur af tónlistarfólki sem setti svip sinn á íslenskt tónlistarlíf um miðja síðustu öld.

Með myndböndunum hefur hann meðal annars kynnt yngri kynslóðina fyrir listafólki á borð við Hallbjörgu Bjarnadóttur, Hauk Morthens, Ingibjörgu Þorbergs og Vilhjálm Vilhjálmsson. Það sem byrjaði sem eitt myndband um Hallbjörgu hefur nú þróast í stærra verkefni.

Daníel, sem vinnur nú að hlaðvarpinu Sagan af þar sem hann hyggst kafa dýpra í líf og feril tónlistarfólksins, ræddi þetta og fleira í nýjasta þætti af hlaðvarpinu Popparasögur.

Eitt myndband sem fór af stað

Upphafið má rekja til þess þegar Daníel var að skoða vefinn Glatkistuna, sem hefur að geyma upplýsingar um íslenska tónlistarsögu. Hann var að renna í gegnum stafrófið þegar hann rakst á nafn Hallbjargar Bjarnadóttur. Hann kannaðist lítið við hana en eftir að hafa lesið sér til um ævi hennar og feril sat hann eftir með eina spurningu: „Af hverju hef ég aldrei heyrt um þessa konu?“

Honum þótti saga Hallbjargar svo merkileg að hann taldi að fleiri þyrftu að kynnast henni. Hann tók því upp einfalt myndband á símann sinn, klippti það til og birti á TikTok. Daginn eftir sá hann að myndbandið hafði fengið um þúsund læk og tugþúsundir áhorfa.

Viðbrögðin komu honum á óvart. Í athugasemdum sagði fólk það nákvæmlega sama og hann hafði hugsað sjálfur, að það hefði aldrei heyrt um Hallbjörgu. Þar kviknaði hugmyndin um að halda áfram.

Næst tók hann fyrir Hauk Morthens og síðan Ingibjörgu Þorbergs. Þetta byrjaði sem áhugamál en smám saman varð ljóst að áhuginn náði langt út fyrir hans eigin vinahóp. „Í mínum vinahóp er ég sögunördinn,“ segir Daníel og hlær. „Það hefur komið mér einna mest á óvart að það er fólk á öllum aldri sem er að læka og kommenta og hefur áhuga á þessu fólki.“

 

Að bjarga sögunum áður en þær hverfa

Fyrir Daníel snýst verkefnið þó um meira en að kynna gömul lög og þekkt nöfn fyrir nýjum áheyrendum. Hann hefur áhyggjur af því hversu hratt minningar um tónlistarfólk og menninguna í kringum það geta glatast. Þeir sem upplifðu tímann, störfuðu með listafólkinu eða þekkja sögurnar af eigin raun eru smám saman að falla frá. „Það eru minningar þarna sem eru bara á bláþræði og það sem mig langar að gera er að ná utan um flestar minningar og safna þeim saman í svona einn púkk þar sem ég get sótt í þetta,“ segir Daníel í hlaðvarpinu.

Viðbrögðin við myndböndunum hafa styrkt hann í þeirri trú að þörfin sé til staðar. Eldra fólk hefur sent honum skilaboð og deilt minningum og stundum hafa aðstandendur tónlistarfólks haft samband og bætt við sögum og upplýsingum. Sumir hafa þakkað honum fyrir að vekja upp minningar sem þeim fannst þeir hafa glatað.

Áhugi hans nær heldur ekki eingöngu til tónlistarinnar sjálfrar. Hann vill varðveita menninguna í kringum hana, staðina þar sem fólk kom saman, fólkið sem vann á bak við tjöldin og stemninguna sem myndaðist í kringum tónleika og dansleiki. Sjallinn á Akureyri er honum sérstaklega hugleikinn og hann hyggst gera sérstaka umfjöllun um húsið og hlutverk þess í tónlistarlífi bæjarins.

„Mér líður stundum eins og ég bara finni lyktina af sögunni í kringum mig,“ segir hann þegar hann lýsir því hvernig honum líður þegar hann stígur inn í Sjallann, spilar þar á böllum og ímyndar sér tónlistarfólkið sem þar hefur komið fram.

Fyrir honum er tónlistarsagan ekki aðeins saga þeirra sem stóðu á sviðinu. Áhorfendur, hljómsveitarmeðlimir, tæknimenn, þjónar og staðurinn sjálfur eru allt hluti af heildinni. „Ég er ekki bara að mæta, spila og fara. Maður finnur fyrir svona rosalegu þakklæti fyrir að fá að gera þetta,“ segir Daníel.

Sögurnar á bak við nöfnin

Hallbjörg Bjarnadóttir var fyrsta viðfangsefnið og að hans mati eins konar sprenging inn í íslenska menningu síns tíma. Hún hafði ung farið til Danmerkur, þar sem hún kynntist annars konar skemmtanalífi og sviðsframkomu en tíðkaðist hér á landi. Þegar hún kom aftur til Íslands hóf hún að halda kabarettsýningar sem vöktu mikla athygli. Ekki voru þó allir jafn hrifnir af nýjungunum.

Daníel hafði meðal annars grafið upp blaðagrein eftir konu sem hafði farið á sýningu hjá Hallbjörgu og var greinilega ekki skemmt. Þar var meðal annars gerð athugasemd við að fólk væri að brosa og það sem greinarhöfundur kallaði „þetta helvítis mjaðmavagg“.

Haukur Morthens er annað dæmi um listamann sem Daníel hefur haft gaman af að kanna frekar. Hann heillast sérstaklega af tímabilinu þegar Haukur var að ryðja sér til rúms á fimmta áratugnum, með sveiflu, djass og glæsileika þess tíma. „Hann drakk aldrei, reykti aldrei,“ segir Daníel, sem nefnir einnig að Haukur hafi verið feiminn í upphafi og unnið sem prentari áður en tónlistin tók yfir.

Hann hafði ekki ætlað sér að verða söngvari en var plataður til að syngja á árshátíð og það varð upphafið að ferli sem átti eftir að gera hann að einum þekktasta söngvara landsins. Daníel hefur sérstakan áhuga á að draga fram þennan tíma í lífi Hauks, áður en hann varð landsþekktur.

Ingibjörg Þorbergs er að hans mati ekki síður merkileg. Hún hafði alla burði til að verða stór poppstjarna en hélt tryggð við sína eigin listrænu sýn í stað þess að fylgja straumum samtímans. „Hún seldi sig aldrei,“ segir Daníel.

Ingibjörg skrifaði mikið fyrir leikhús, var einn af frumkvöðlum í íslenskri barnatónlist og vann við upptökur og útsetningar á tímum þegar tónlistarbransinn var að miklu leyti karlaveldi. Daníel nefnir sérstaklega hversu óvenjulegt það hafi verið að kona skyldi stjórna upptökum og koma svo víða að tónlistarsköpuninni.

Vilhjálmur Vilhjálmsson, Villi Vill, er sá sem Daníel segir að hann hafi nánast fengið tilfinningu fyrir að þekkja eftir að hafa kafað ofan í ævi hans. Villi var ungur námsmaður á Akureyri, söng með hljómsveit Ingimars Eydals um tíma og átti síðar eftir að verða einn af ástsælustu söngvurum landsins.

Daníel hefur sérstakan áhuga á síðasta kafla ferils Villa og plötunni Hana nú, sem hann telur eina bestu plötu Íslandssögunnar. Þar hafi Villi loksins fengið meira svigrúm til að móta eigin tónlist og persónuleiki hans komið skýrar fram. „Mér finnst eins og allur persónuleikinn hans komi í ljós,“ segir Daníel um plötuna. Þar mátti finna bæði söknuðinn, húmorinn og hina alvarlegri hlið listamannsins.

Ellý Vilhjálms hefur einnig vakið áhuga Daníels. Hann nefnir sérstaklega hvernig hún hélt í sinn eigin tónlistarstíl þrátt fyrir breytta strauma í íslenskri dægurtónlist. Hún sótti meðal annars í suðræna sveiflu og lét ekki rokkbylgjuna sem fylgdi Elvis Presley ráða för.

Hann hefur líka velt fyrir sér því hvernig ferill kvenna í tónlist mótaðist af samfélagsaðstæðum þess tíma. Margar söngkonur hurfu að einhverju leyti frá tónlistinni til að sinna móðurhlutverkinu. Daníel vill þó fara varlega í að fullyrða hvernig þær upplifðu þær ákvarðanir eða hvort þær hafi séð eftir þeim.

Ingimar Eydal er svo stór hluti af þeirri tónlistarsögu sem Daníel vill varðveita, ekki síst vegna tengingarinnar við Akureyri og Sjallann. Hann segir Ingimar hafa verið einstakan tónlistarmann sem gat lært ný lög á ótrúlega skömmum tíma. Hann og bróðir hans Finnur voru tónlistarlega vel gefnir frá unga aldri og farnir að spila víða um Akureyri aðeins þrettán ára gamlir.

Raggi Bjarna er einnig meðal þeirra sem Daníel hyggst fjalla um í verkefninu. Hann nefnir að það sé margt sem hægt sé að kafa ofan í þegar kemur að þessum listamönnum og að hver þeirra eigi sína sögu sem verðskuldi að fá að njóta sín.

Hlaðvarpið Sagan af

Daníel vinnur nú að hlaðvarpinu Sagan af, þar sem hann hyggst gefa sögunum mun meira rými. Hugmyndin er að hver þáttur fjalli um einn tónlistarmann og verði um það bil 40 mínútur að lengd. Þetta verða frásagnarþættir þar sem sögumaður leiðir hlustandann í gegnum líf og feril viðkomandi. Inn á milli koma viðtalsbrot frá fólki sem þekkti tónlistarfólkið eða tengdist því, ásamt hljóðmynd sem á að dýpka upplifunina.

Hann hefur þegar hafið rannsóknarvinnu og tekið viðtöl við aðstandendur og fólk sem tengist meðal annars Ellý, Villa og Ingimari. Auk þeirra stefnir hann að því að fjalla um Hauk Morthens, Ingibjörgu Þorbergs og Ragga Bjarna. Daníel tekur þó fram að verkefnið sé enn í vinnslu og að hann vilji hafa svigrúm til að ákveða endanlega viðfangsefni.

Vinnan er mikil og að mestu hefur hann staðið einn að verkefninu. Hann segir þó að áhuginn sé til staðar og að þetta sé verkefni sem hann hafi bæði gaman af og vilji leggja metnað í. Stefnt er að því að fyrsti þátturinn komi út næsta vor, með þeim fyrirvara að tímasetningin geti breyst. „Ég fíla bara góðar sögur og ég er að reyna að gera það, góðar sögur fyrir fólk með einhverjum máta. Og svo er þetta bara að hafa gaman að þessu og kynnast menningu okkar aðeins meira,“ segir Daníel.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅