Öflug frammistaða landsliðsmannsins dugði ekki til
Kristján Örn Kristjánsson átti flottan leik fyrir Skanderborg í 33:32-tapi liðsins gegn Mors-Thy í dönsku bikarkeppninni í handbolta í kvöld.
Kristján Örn skoraði sjö mörk úr átta skotum utan af velli og var auk þess með eina stoðsendingu.
Kristján og félagar voru í góðri stöðu og voru mest fjórum mörkum yfir á kafla í síðari hálfleik. Leikurinn var hnífjafn á lokamínútunum en gestirnir skoruðu sigurmarkið þegar ein sekúnda var eftir.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗