Öflug frammistaða landsliðsmannsins dugði ekki til

Kristján Örn Kristjánsson í leik Íslands gegn Úkraínu í síðustu viku. mbl.is/Hákon

Kristján Örn Kristjánsson átti flottan leik fyrir Skanderborg í 33:32-tapi liðsins gegn Mors-Thy í dönsku bikarkeppninni í handbolta í kvöld. 

Kristján Örn skoraði sjö mörk úr átta skotum utan af velli og var auk þess með eina stoðsendingu.

Kristján og félagar voru í góðri stöðu og voru mest fjórum mörkum yfir á kafla í síðari hálfleik. Leikurinn var hnífjafn á lokamínútunum en gestirnir skoruðu sigurmarkið þegar ein sekúnda var eftir.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅