Gæti stefnt í allt að 38 manna réttarhöld
Þétt var setið í sal 101, en til viðbótar var öllu streymt í sal 102 þar sem öll sæti í aðalsalnum fylltust. mbl.is/Þorsteinn
Samtals hafa 37–38 manns neitað sök í fjársvika- og peningaþvættismálinu sem kennt er við Landsbankann, þar á meðal höfuðpaurarnir tveir og fjórir aðrir sem sagðir eru hafa gegnt lykilhlutverki í málinu. Samtals var 71 ákærður í málinu en nokkur fjöldi þeirra sem ákærður var fyrir minniháttar brot í málinu hefur játað sinn hlut.
Það gæti því stefnt í að þetta verði fjölmennari aðalmeðferð en í Bankastræti-club-málinu. Aðalmeðferð þess fór fram í Gullhömrum árið 2023 og voru samtals 25 sakborningar í málinu. Er þetta því líklegast fjölmennasta sakamál sem rekið hefur verið fyrir héraðsdómi, allavega í lengri tíma.
Einhverjir gætu skipt um skoðun
Ekki er þó endanlega ljóst hvort einhver hinna 37–38 sem neita sök muni endurskoða afstöðu sína og játa, en dómari staðfesti við fyrirtöku í dag að mál allra sem játuðu verði klofið frá aðalmálinu.
Til viðbótar eiga einhverjir eftir að taka endanlega afstöðu í málinu eða hafa ekki mætt fyrir dóm og mega eiga von á útvistun. Eitt slíkt tilvik var afgreitt í fyrirtökunni í dag. Það gætu því jafnvel orðið fleiri en 38 í aðalmeðferð ef þeir sem eiga eftir að taka afstöðu munu einnig neita.
Fjölmenn fyrirtaka í Landsbankamálinu svokallaða fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. mbl.is/Þorsteinn
Sextán mál kláruð í dag
Fyrir dóminn í dag komu samtals 33 sakborningar eða verjendur þeirra. Tveir þeirra voru lykilaðilar, en allir hinir teljast til þeirra sem neðst voru í verkskiptingu málsins. Mál sextán þeirra voru kláruð sem játningamál, þótt deilt væri í einhverjum tilfellum um það hvort um gáleysi hafi verið að ræða.
Flutti saksóknari stutta yfirferð í hverju máli sem átti að klára og verjendur bentu á atriði sem þeir töldu eiga að leiða til refsilækkunar fyrir skjólstæðinga sína. Mun dómari svo kveða upp dóm í þessum málum á komandi vikum.
Í fjórum öðrum tilvikum er áformað að slíta málin frá og halda aðalmeðferð í fyrirtökum í komandi vikum, en slíkt mun líklega aðeins taka um 20 mínútur fyrir hvert mál.
Fór fram á allt að 8 mánaða dóma í dag
Saksóknari lagði til 1-8 mánaða dóma yfir þeim sem kláruðu mál sín í dag. Í flestum tilfellum var um 30-60 daga að ræða og lagt í hendur dómstólsins að meta hvort um skilorðsbundna dóma ætti að vera að ræða. Þegar upphæðirnar sem um ræddi hækkuðu teygði saksóknari sig upp í 3-4 mánuði og þegar um yfir 5 milljónir var að ræða sem viðkomandi höfðu sjálfir tekið á móti eða komið til leiða að færu inn á reikninga hjá öðrum sem þeir þekktu fór saksóknari fram á 6-8 mánaða dóma þar sem ekki ætti að skilorðsbinda.
Saksóknari vísaði í fjölda mála til stuðnings kröfu sinni, meðal annars dóma í Landsrétti þar sem fólk hafði hlotið óskilorðsbundna dóma eftir að hafa verið tekið með nokkrar milljónir í reiðufé sem talið var að kæmu úr brotastarfsemi.
Verjendur töluðu hins vegar fyrir vægari dómum og töldu allir rétt að skilorðsbinda dóma skjólstæðinga sinna. Vísuðu þeir einnig til peningaþvættismála í héraði þar sem upphæðir höfðu verið hærri og ávinningur meiri, en dómar á svipuðu pari og saksóknari fór nú fram á.
Tvær fyrirtökur boðaðar
Allavega tvær aðrar fyrirtökur eru boðaðar í málinu áður en ákvörðun um aðalmeðferð verður tekin. Verða þær 23. nóvember og 8. desember. Fram kom í dag að þá verði afstaða sakborninga að liggja fyrir. Jafnframt verður þá aðalmeðferð í þeim málum sem nefnd eru hér að ofan og í útvistunarmálum.
Í seinni fyrirtökunni á svo að ákveða næstu skref um aðalmeðferð og líklegast velja dagsetningu og staðsetningu fyrir þinghaldið. Ljóst er að með þessum fjölda sakborninga mun það ekki passa í neinn hefðbundinn dómsal.
Um hvað snýst málið?
Í málinu er í heild 71 maður ákærður. Tveir menn eru ákærðir fyrir að hafa nýtt sér kerfisvillu í netbanka Landsbankans til að millifæra rúmlega 120 milljónir króna, en þeir neituðu sök við þingfestingu málsins í síðustu viku.
Fjórir til viðbótar eru svo sagðir gegna lykilhlutverki í að koma fjármunum áfram inn á aðra einstaklinga og neita einnig sök við alvarlegustu ásökunum í ákæru.
Þá eru 65 ákærðir fyrir peningaþvætti með því að hafa tekið á móti millifærslum og í mörgum tilfellum tekið fjármuni út í reiðufé og afhent höfuðpaurunum gegn þóknun. Samkvæmt ákærunni millifærðu mennirnir samtals 120,3 milljónir króna í 218 færslum á tímabilinu 11. til 28. október 2025. Ólögmætur ávinningur af háttseminni er talinn hafa numið 95,6 milljónum króna.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
