Eignaðist son og á nú yfir höfði sér 100 svipuhögg
Kenísk fimm barna móðir á yfir höfði sér 100 svipuhögg í Sádi-Arabíu. Ljósmynd/Unsplash/Oualid Lakhrouti
Esther Wanja Muthoni, fertug fimm barna móðir frá Kenía, á yfir höfði sér 100 svipuhögg í Sádi-Arabíu fyrir kynmök utan hjónabands. Hún hafði starfað þar sem heimilishjálp og eignaðist son í ágúst í fyrra.
The New York Times fjallar um málið og byggir umfjöllun sína meðal annars á dómsgögnum og viðtölum við Muthoni. Hún hefur í rúmt ár reynt að komast heim til Kenía með son sinn, Abudy, en málaferlin hafa komið í veg fyrir brottför þeirra.
„Ég er svo hrædd,“ sagði hún við blaðið. „Ég held að ég geti ekki þolað þessi svipuhögg.“
Muthoni varð barnshafandi eftir samband við egypskan mann sem hún segir að hafi síðar farið úr landi. Hún fæddi soninn í starfsmannahúsnæði en var síðar flutt á sjúkrahús, þar sem hún var yfirheyrð vegna meðgöngunnar.
Hún naut aðstoðar túlks fyrir dómi en hafði engan lögmann. Í október var hún dæmd til að þola 100 svipuhögg auk eins árs útlegðar. Óljóst er hvort útlegðin feli í sér brottvísun til Kenía eða flutning til annarrar borgar í Sádi-Arabíu.
Eftir að Muthoni var sleppt úr haldi var henni vísað frá starfsmannahúsnæðinu og athvarfi sem hún leitaði til. Hún hafðist um tíma við á bensínstöð í Ríad, þar sem fleiri erlendar mæður í svipaðri stöðu höfðu leitað skjóls. Síðar útvegaði fyrirtækið sem hún starfaði hjá henni húsnæði.
Áfrýjaði ekki dómnum
Muthoni á fjögur önnur börn í Kenía og hefur lengi reynt að komast heim til þeirra. Hún áfrýjaði ekki dómnum þar sem hún taldi það geta tafið heimför sína enn frekar.
Keníska sendiráðið hafði áður útvegað henni og syninum ferðaskilríki en þau eru nú útrunnin. Ekki liggur fyrir hvenær refsingunni verður fullnægt eða hvort mæðginunum verði heimilað að yfirgefa landið.
Sádi-Arabía tilkynnti árið 2020 um verulegar takmarkanir á svipuhöggum sem refsingu. Undantekningar voru þó gerðar vegna brota þar sem slík refsing er fyrirskipuð samkvæmt túlkun á íslömskum lögum, meðal annars fyrir kynmök utan hjónabands.
Telja refsinguna grimmilega og ómannúðlega
Korir Sing’Oei, háttsettur embættismaður í utanríkisráðuneyti Kenía, hefur tjáð sig um málið. Samkvæmt keníska miðlinum The Standard sagði hann í færslu á X að refsingin myndi teljast grimmileg og ómannúðleg samkvæmt kenískum lögum. Hann tók jafnframt fram að kenísk stjórnvöld virtu sjálfstæði sádi-arabíska réttarkerfisins.
Sing’Oei segir kenísk stjórnvöld áfram munu vinna með sádi-arabískum yfirvöldum að lausn málsins. Ekki hefur verið greint frá niðurstöðu þeirrar vinnu.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗