Grindvíkingar greiða 2% kaupverðs í upphafi
Grindvíkingum sem hyggjast kaupa fasteignir í bænum til baka mun bjóðast að greiða aðeins 2% af kaupverði við undirritun kaupsamnings.
Kom þetta fram í máli Arnar Viðars Skúlasonar, framkvæmdastjóra fasteignafélagsins Þórkötlu, á kynningarfundi forsætisráðuneytisins og Þórkötlu á endurkaupaáætlun Þórkötlu í Grindavík í dag.
Kaupsamningsgreiðslan nemur í heild minnst 5% af kaupverði og greiðast hin 3% hennar í janúar 2028.
Fyrsti áfangi endurkaupa í byrjun árs 2027
Eins og mbl.is hefur áður fjallað um mun Grindvíkingum bjóðast að kaupa fasteignir í bænum til baka á sama verði og Þórkatla greiddi fyrir þær í kjölfar eldsumbrotanna á Reykjanesskaga.
Endurkaupin byggjast á fyrirkomulagi sem svipar til leigu með kauprétti og stefnt er að því að fyrsti áfangi endurkaupa hefjist í byrjun árs 2027 og verði þá sérstaklega ætlaður Grindvíkingum.
Ekki hefðbundin fasteignaviðskipti
Örn sagði í máli sínu að þótt áætlunin snerist um kaup fasteigna þá væri ekki um hefðbundin fasteignaviðskipti að ræða heldur framhald þeirra björgunaraðgerða sem ráðist var í við stofnun félagsins í mars 2024.
Sagði hann áherslur Þórkötlu hafa meðal annars verið að tryggja forgang þeirra sem bjuggu í Grindavík í nóvember 2023, gera fólki kleift að halda eignarhaldi á annarri eign fyrstu árin og að afmarka skuldbindingu kaupenda vegna þeirrar óvissu sem enn ríkir.
Til að draga úr fjárhagslegri áhættu þeirra sem vilja flytja aftur til Grindavíkur verður boðið upp á sérstakan skilarétt í allt að þrjú ár. Á þeim tíma geta kaupendur skilað eigninni án skilyrða og fengið upphaflega kaupsamningsgreiðslu endurgreidda.
Fyrstu fjögur svo fimm prósent
Kaupsamningsgreiðslan nemur að lágmarki 5% af kaupverði og munu mánaðarlegar kaupleigugreiðslur miðast við eftirstöðvar kaupverðs.
Árið 2027 mun árleg kaupleiga nema 4% af eftirstöðvum kaupverðs, skipt niður á tólf mánuði. Fjórðungur greiðslnanna mun fara til eignamyndunar en 75% í fjármagnskostnað.
Frá ársbyrjun 2028 hækkar kaupleigan í 5% af eftirstöðvum kaupverðs og munu 40% greiðslnanna fara til eignamyndunar en 60% í fjármagnskostnað.
Auk þess verða fyrstu fjórir mánuðirnir án greiðslu kaupleigu til Þórkötlu, að því gefnu að þeir falli innan ársins 2027. Kaupendur þurfa þó að standa straum af kostnaði vegna hita, rafmagns, brunatryggingar og fasteignagjalda.
Samningarnir munu gilda í allt að þrjú ár en þeim lýkur í öllum tilfellum 31. janúar 2030. Möguleg framlenging skilaréttar um tvö ár verður tekin til skoðunar árið 2029 með hliðsjón af aðstæðum í Grindavík.
Horft til annarra í framhaldinu
Stefnt er að því að hefja leigu fasteigna fljótlega í byrjun árs 2027 og verður fyrst um sinn sérstaklega horft til þeirra sem höfðu lögheimili í Grindavík í nóvember 2023.
Þá er stefnt að því að hefja sölu fasteigna til annarra en Grindvíkinga síðla árs 2027 eða árið 2028. Þeir kaupendur munu þó ekki njóta sömu kjara og Grindvíkingum standa til boða.
Örn tók jafnframt fram að grunninnviðir húsanna í Grindavík væru almennt í góðu ástandi, þótt ástand eignanna hefði verið mismunandi þegar Þórkatla tók við þeim.
Þá hafi Þórkatla fylgt eftir öllum tilkynntum tjónum og gerðar athugasemdir við fjölda mála.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗