Dómstóll í London sneri við banni við samkynhneigð í Trinidad og Tóbagó
Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 11. nóvember 2026 19:30
Jason Jones skaut málinu alla leið til Lundúna. Mynd/Getty
Svokölluð Dómsnefnd konungsráðsins í London, höfuðborg Bretlands, hefur snúið við banni við mökum samkynhneigðra í Karíbahafsríkinu Trinidad og Tóbagó. Málið er talið geta haft áhrif á fleiri ríki.
Sjónvarpsstöðin CNN greinir frá þessu.
Árið 2018 úrskurðaði dómstóll í Trinidad og Tóbagó, í sunnanverðu Karíbahafi, að lög um bann við mökum samkynhneigðra væru gegn stjórnarskránni. En samkynhneigðir höfðu fram að því getað átt von á allt að 25 ára fangelsisdómi fyrir mök og 5 ára fyrir „ósæmilega hegðun“. Var það maður að nafni Jason Jones, baráttumaður fyrir réttindum hinsegin fólks, sem kærði bannið.
Í fyrravor var þeim úrskurði hins vegar aftur snúið við af áfrýjunardómstóli í landinu og samkynhneigð því aftur bönnuð með lögum.
Þetta sætti Jones sig ekki við og skaut málinu til Dómsnefndar konungsráðsins í London. Nefndin hefur nú ógilt seinni úrskurðinn og samkynhneigð því aftur orðin lögleg í Trinidad og Tóbagó.
Ástæðan fyrir því að nefndin hefur þetta vald er sú að Trinidad og Tóbagó er hluti af Breska samveldinu (e: Commonwealth). Þrátt fyrir að hafa fengið sjálfstæði árið 1962 þá eru tengslin við gömlu nýlenduherrana í Bretlandi enn þá mikil, bæði menningarlega og stjórnmálalega.
Áhrif víðar
Talið er að úrskurðurinn gæti haft áhrif í fleiri löndum samveldisins sem enn þá banna samkynhneigð, eða það er að segja mök samkynhneigðra. Lönd eins og Karíbahafseyjarnar Jamaíku, Grenada og Sankti Vinsent og Grenadíneyjar eða í Suður Ameríkulandinu Gvæana. Misjafnt er þó hversu mikil völd Dómsnefndar konungsráðsins eru.
„Mál mitt snýst ekki aðeins um að afglæpavæða kynferðislegar athafnir samkynhneigðra í löndum í samveldinu sem hafa þessi gömlu bresku nýlendulög. Þetta snýst um að gera fólk meðvitað um hvernig hommahatur er notaður sem vopn til að svipta okkur lýðræðislegum réttindum,“ sagði Jones, sem er fæddur í Trinidad og Tóbagó en búsettur í Bretlandi.
Lög frá sextándu öld
Benti hann á að þessi lög væru arfleið nýlendustefnunnar, það er að Bretar hefðu komið þeim á og þau hefðu dagað uppi í mörgum fyrrverandi nýlendum. Það sé þess virði að spyrja sig hvers vegna þessi sjálfstæðu lönd væru að halda í þessa forneskju þegar Bretar sjálfir hafi verið búnir að afnema hana fyrir áratugum síðan.
Lögin voru upphaflega sett á sextándu öld, í tíð Hinriks VIII konungs, og komið á í Trinidad og Tóbagó árið 1925. Það er gegn samkynja mökum karlmanna. Í Bretlandi voru þau afnumin á sjöunda áratugnum. Árið 1986 voru lögin hins vegar hert í Trinidad og Tóbagó, það er fangelsisdómar þyngdir og samkynja mök kvenna einnig gerð refsiverð.
„Við getum ekki lengur kennt Hinriki VIII og Bretunum um. Þetta er núna okkar eigið heimaræktaða hommahatur,“ sagði Jones.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗