Börn og fjölskyldur kallaðir „vanvitar“

Snorri Steinn Vidal lögmaður segist hafa rekist á niðrandi lýsingar í gömlum gögnum um skjólstæðinga sína. Á myndinni sjást þrír fyrrverandi vistmenn Bakkakots. Samsett mynd: mbl.is/Karítas/Colourbox

Snorri Steinn Vidal lögmaður segist hafa rekist á sláandi lýsingar á skjólstæðingum sínum og fjölskyldum þeirra við yfirferð gamalla gagna um börn sem vistuð voru utan heimilis fyrir tilstilli stjórnvalda.

Hann segir að í gögnunum sé fólk meðal annars kallað „vanvitar“ og því lýst svo að ekkert mark sé á því takandi. Snorri telur að slíkar lýsingar varpi ljósi á hvers vegna kvartanir barnanna og foreldra þeirra hafi ekki verið teknar alvarlega.

Snorri og Bjarki Heiðar Bjarnason, lögmenn hjá Solidum, gæta hagsmuna fleiri tuga einstaklinga sem hafa lýst alvarlegu ofbeldi þegar þeir voru vistaðir utan heimilis sem börn, meðal annars á Bakkakoti á Rangárvöllum.

Blöskraði við lesturinn

Í samtali við mbl.is lýsir Snorri því hvernig hann og Bjarki hafa farið yfir umfangsmikil gögn um skjólstæðinga sína. Hann segir sér hafa blöskrað það sem þar kom fram, ekki síst hvernig fjallað var um börnin og fjölskyldur þeirra.

Snorri segir að margir virtir barnalæknar og sálfræðingar hafi á sínum tíma skrifað um skjólstæðinga þeirra og fjölskyldur þeirra.

Að sögn Snorra hafi skjólstæðingarnir og jafnvel heilu fjölskyldurnar verið kallaðar „vanvitar“ í gögnunum. Þá hafi þeim verið lýst sem fólki sem ekkert mark væri á takandi.

Hann veltir því fyrir sér hvort þeir sem skráðu upplýsingarnar hafi gert sér grein fyrir því að síðar yrðu sett upplýsingalög sem gerðu einstaklingunum kleift að nálgast gögnin og lesa sjálfir hvað um þá var skrifað.

Kvartanir ekki teknar alvarlega

Snorri telur að þessar lýsingar varpi ljósi á hvers vegna kvartanir barnanna og foreldra þeirra hafi ekki verið teknar alvarlega.

„Svo þú getur ímyndað þér þegar hérna einhver barnasálfræðingur og barnalæknir eru búin að skrifa þetta um fjölskyldu viðkomandi og svo koma einhverjar umkvartanir hjá börnum, börnunum eða foreldrum þeirra að það var náttúrlega ekkert hlustað á einn eða neinn,“ segir Snorri.

Í fyrri umfjöllun um Bakkakot hefur komið fram að börn kvörtuðu undan ofbeldi á bænum án þess að gripið væri til fullnægjandi aðgerða.

Gagnrýnir nýtt frumvarp

Ummæli Snorra féllu í samtali við mbl.is vegna nýrra frumvarpsdraga forsætisráðuneytisins um almennar sanngirnisbætur, sem birt voru í Samráðsgátt stjórnvalda 3. nóvember.

Snorri og Bjarki skiluðu 10. nóvember tólf síðna umsögn um frumvarpið þar sem þeir fagna því að málið sé komið í þennan farveg en leggja jafnframt til umfangsmiklar breytingar.

Snorri hefur meðal annars gagnrýnt fyrirhugaðar bótafjárhæðir og telur fimm milljóna króna hámark sanngirnisbóta „skammarlegt“.

Lögmennirnir gera einnig athugasemdir við að frumvarpið tryggi ekki brotaþolum lögmannsaðstoð á kostnað ríkisins.

Snorri segir slíka aðstoð mikilvæga, enda geti verið erfitt að afla gagna um vistun sem átti sér stað fyrir áratugum. Hann segir stjórnvöld jafnframt ekki alltaf hafa verið fús til að afhenda gögn sem þau hafi undir höndum.

Hann bendir á að margir skjólstæðingar þeirra beri lítið traust til opinbera kerfisins eftir reynslu sína í æsku.

Segir sannleikann ótrúlegri en skáldskap

Snorri nefnir Bakkakot sérstaklega og segir sveitarfélög hafa haldið áfram að senda börn þangað þótt heimilið hefði verið svipt leyfi til að taka á móti börnum.

Hann segir það sem komið hafi fram við yfirferð þessara mála svo alvarlegt að erfitt sé að gera sér í hugarlund að slíkt hafi getað viðgengist.

„Þetta er bara alveg eitt stærðarinnar sorgarmál,“ segir Snorri.

Hann leggur áherslu á að ljúka þurfi málinu með sóma, bæði fyrir brotaþolana sjálfa og íslenskt samfélag í heild.

Snorri Steinn Vidal lögmaður telur niðrandi lýsingar á vistbörnum og fjölskyldum þeirra í gömlum gögnum varpa ljósi á hvers vegna kvartanir þeirra voru ekki teknar alvarlega. Myndin er táknræn. Karítas Sveina Guðjónsdóttir

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅