Lögreglan herðir eftirlit með ólöglegu streymi – Kaupendur gætu fengið heimsókn
Bresk yfirvöld hafa hert aðgerðir gegn ólöglegu streymi á knattspyrnuleikjum og beina nú sjónum sínum í auknum mæli að notendum þjónustunnar.
Svokallaðir „Fire Sticks“ eru notaðir til að nálgast útsendingar frá meðal annars Sky Sports án þess að greiða hefðbundin áskriftargjöld.
Rav Wilding, fyrrverandi rannsóknarlögreglumaður, varaði notendur við afleiðingunum í þættinum BBC Morning Live.
„Það er ekki ólöglegt að eiga tækið sjálft, en það er ólöglegt að nota það í þessum tilgangi,“ sagði Wilding.
Hann segir lögreglu ekki lengur einblína á seljendur heldur einnig rannsaka hverjir kaupi þjónustuna.
Þegar seljendur eru handteknir séu bankayfirlit þeirra skoðuð til að finna viðskiptavini.
„Fólk gæti átt von á samtali við lögregluna ef í ljós kemur að það hefur greitt fyrir þessa ólöglegu þjónustu.“
Talið er að um fjórar milljónir heimila eða einstaklinga noti slík tæki í Bretlandi.
Wilding segir að bæði seljendur og notendur geti átt yfir höfði sér háar sektir og jafnvel fangelsisrefsingu.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗